Noregur Hjólað til framtíðar á Karls Johansötu í Óslóarborg.
Noregur Hjólað til framtíðar á Karls Johansötu í Óslóarborg. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í vikunni kynnti Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra áherslur formennskuárs Íslendinga á sviði menningarmála.

Á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í vikunni kynnti Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra áherslur formennskuárs Íslendinga á sviði menningarmála. Ísland tekur við formennsku í Norðurlandaráði í byrjun næsta árs og var áætlun Íslands því viðvíkjandi kynnt í heild sinni á þinginu. Áætlun byggist á þrennu: Ungt fólk á Norðurlöndum , Sjálfbær ferðamennska í norðri og Hafið – blár vöxtur í norðri .

UNESCO í brennidepli

„Viðfangsefni okkar á menningarsviðinu tengjast áherslunni á ungt fólk á Norðurlöndunum, þannig eru Menntun fyrir alla og Platform-Gátt umfangsmikil verkefni á sviðum menntunar og lista fyrir ungt fólk. Á þessu ári förum við einnig með formennsku í norrænu barna- og ungmennanefndinni NORDBUK en eitt af markmiðum hennar er að efla samtakamátt og þátttöku ungs fólks á Norðurlöndunum í samfélagslegum verkefnum og lýðræðisferlum,“ sagði Lilja Dögg að því er fram kemur í tilkynningu.

Einnig verða skipulagðar tvær ráðstefnur þar sem málefni UNESCO verða í brennidepli, og gert átak í að efla fjölmiðlun sem tæki gegn falsfréttum og upplýsingaóreiðu. Það verkefni á sér rót í formennsku Svía á þessu ári. Í íþróttamálum er ráðgert að skipuleggja hliðarviðburði á stórri ráðstefnu íslensku formennskunnar næsta haust um #metoo-byltinguna .

Ísland leggur áherslu á tungumálasamstarf í formennsku sinni og hyggst ráðherra kanna hvort tímabært sé að endurskoða málstefnu Norðurlanda: „Mikilvægt er einnig að sjónarhorn ungs fólks komi af fullum þunga inn í umræður um áherslur í norrænu tungumálasamstarfi. Í formennskuáætlun Íslands í norrænu samstarfi fyrir árin 2019-2021 er sérstök áhersla lögð á þátttöku og samræðu ungs fólks um mennta- og menningarmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna,“ segir í fréttatilkynningu.

Á fundinum var einnig tekin ákvörðun um sameiginlega menningarkynningu Norðurlandanna, hliðstæða Nordic Cool sem fram fór í Washington 2013 og Nordic Matters í Lundúnum 2017. Menningarsamstarf af því tagi hefur verið kveikja að fjölmörgum hátíðum og listverkefnum á Norðurlöndunum. Norræn sendinefnd mun kynna tillögur sínar að staðsetningu þriðju menningarkynningarinnar um miðjan nóvember.