Arion Stjórnendur skiptu um skoðun.
Arion Stjórnendur skiptu um skoðun.
Arion banki hefur hætt við að fjarlægja hraðbanka sinn á Hofsósi en hann er eini hraðbankinn á staðnum. Var það tilkynnt þegar byggðaráð Skagafjarðar og sveitarstjóri fóru á fund bankastjórans og fleiri yfirmanna. Fyllt var aftur á hraðbankann í gær.

Íbúar á Hofsósi og nágrenni lýstu megnri óánægju með ákvörðun bankans um að loka. „Við hlustuðum á þá gagnrýni sem kom fram,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka. Hann segir að jafnframt verði skoðað hvort mögulegt sé að auka aðgengi að hraðbankanum til að auka notkun hans og þar með tekjur af honum.

„Allir eru ánægðir með þetta,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri. helgi@mbl.is