— Morgunblaðið/RAX
Það er ekki tilefni né gagn að hræðsluáróðri um þetta fjall, frekar en Kötlu vestar. En þau verður að þekkja og þau verður að virða. Það er á hinn bóginn komið fullt tilefni til að setja fjallið í algjöra gjörgæslu strax. Miða verður viðbúnað við að gosið gæti orðið í næstu viku.

Mjög er rætt um þann fjandskap, stóryrði og fullyrðingar í bland við fáránleika og heimsku sem einkennir framgöngu margra á netmiðlum. Þar eru jafnvel beinar atlögur að heiðri og tiltrú einstaklinga sem flókið og jafnvel ómögulegt er að láta menn ábyrgjast.

Ærumat sveiflast

Þróun hjá dómstólum virðist um þessar mundir vera sú að veita stóryrtum og fullyrðingasömum ríkulegra svigrúm með vísun til málfrelsis en beinlínis má lesa út úr lögunum sjálfum. Slík þróun er skiljanleg og jafnvel æskileg þótt æskilegra kynni að vera að sá aðili sem stjórnarskráin ætlar að leggja línuna geri það, veiti leiðbeiningar eða gefi bein lagafyrirmæli um breytt mat. En það er líka hugsanlegt að dómstólar horfi til ástandsins á netinu en mál þaðan berast seint og illa til þeirra vegna takmarkaðs rekjanleika. Fjölmiðlar sem rísa undir því nafni, sem eru nú orðnir fáir á Íslandi, hafa sín sigti, þótt þar sleppi samt eitt og annað í gegn.

Netið er allt önnur saga, þótt þar sé mikill munur á þeim sem bestir eru og hinum lökustu. Sennilega verður ekki raunveruleg bót gerð fyrr en finnst leið til að láta alla menn bera þar ábyrgð á orðum sínum eða þá að aðrir axli fyrir þá ábyrgð eins og er reglan á hinum almennu fjölmiðlum. Allir fjölmiðlar sem eitthvað geta gefa skoðunum miðilsins aukinn þunga með því að hann ber ábyrgð á því sem þar er sagt í ritstjórnardálkum.

Minni háttar fjölmiðlar treysta sér ekki til að hafa eiginlega skoðanadálka fjölmiðilsins og þar eru einstakir starfsmenn látnir viðra sjónarmið sín og getur því viðhorfið verið eitt í dag og annað á morgun og segir ekkert um stefnu miðilsins. Þegar talað er í leiðurum eða sambærilegum ritstjórnargreinum er talað í nafni fjölmiðilsins og hann ber því ábyrgð á þeim orðum. Því fylgir krafa um að samhengi sé í þeim skoðunum og þær séu vel grundaðar.

Ævisögur eru enn eftirsóknarverðar bækur. Misvel er þó að slíkum bókum staðið og iðulega telja menn sig þá þurfa litla ábyrgð að taka á sínum orðum. Og það fer ekki illa á því að í slíkum bókum sé svigrúmið mikið. Enda er þá ekki farið í felur með hver samþykkir endanlega frásögn.

Gallagripur tekur öllu vel

Seint verður sagt um bréfritara að þar fari gallalaus maður. Væri hann hús og lyti fasteignaviðskiptum væri honum vísast óhætt að segja að þótt hann væri göllum hlaðinn þá hefði hann hvergi rúm fyrir leynda galla lengur.

Bréfritari er svo sem ekki að dreifa um sig neikvæðum sögum nema helst til gamans og á þá erfitt með að stilla sig. En hann býr svo vel að stór hópur sjálfboðaliða er iðinn við að upplýsa heiminn um galla hans. Það er eitt af undrum tilverunnar hversu mörgum göllum má koma fyrir á einu eintaki og hlýtur þó margt að vera enn ósagt, því margir eru enn að.

Virðingarvert er að tiltölulega fáir úr þeim fjölda eru gerðir út af mönnum með illa fengið fé sem þeir í iðrunarskyni verja í göfgandi verkefni eins og að láta skrifa bækur þar sem „málstaðnum“ er komið að og hafa kórdrengi kyrjandi á netinu.

Ár eftir ár eru gefnar út bækur þar sem samtímamenn koma við sögu og sleppt er að sannreyna eitt né neitt þótt hæg væru heimatökin. Þeir liggja best við höggi sem aldrei svara beint neinu af því sem skrökvað er um þá, aldrei leita atbeina dómstóla vegna sannarlega ærumeiðandi, mannskemmandi skrifa.

Myglan er vaxandi vandi í íslenskri húsagerð og ástæðurnar eru enn ekki fullrannsakaðar, en mygluna í íslenskri samtímaumræðu er auðveldara að skilja.

Hlusta og bregðast við

En Íslendingar þekkja önnur eyðingaröfl, svo miklu stórbrotnari að allt verður að gjalti í samanburði. Frásögn Morgunblaðsins um gosin tvö í Öræfajökli 1362 og 1727 eru um stóratburði sem orðnir eru fjarlægir í tíma en voma samt áfram yfir sem óhugnanlegur fyrirboði.

Öræfajökull er fegurðin jökli klædd. Allir læsir Íslendingar vita að Öræfajökull er 2.119 metrar á hæð og rétt að gleyma tilraunum hins opinbera til að lækka hann um fáeina metra um árið. Enda sennilegt að það skens hafi lagst illa í jökulinn.

Okkur þykir nafnið hans fallegt og sveitarinnar nöfnu hans. En muna verður að þau komu ekki til af góðu og voru ekki fegurðarverðlaun á þeim tíma.

Eins og kom fram í fimmtudagsgrein Kristjáns Johannessen blaðamanns varð mikið manntjón í fyrra gosinu sem orðið hefur á sögulegum tíma auk annarrar eyðileggingar sem var algjör.

Eldgos og popp

Það vottar stumdum fyrir því að talað sé um eldgos landsins sem uppákomur, jafnvel sem myndrænar og spennandi fréttir með jákvæðu ívafi, sem ýti undir dulmagnaða mynd af landi og þjóð. Stundum eru þau einmitt þannig, Og þess háttar eldsumbrot eru þekkt víðar, eins og Etna sígjósandi á Sikiley er dæmi um. En eldstöðvar, fjöll eða gígir, eru ekki lömb að leika sér við. Það segir sig sjálft og sagan tekur undir.

Eldgos eru stjórnlaus eyðileggingaröfl, ófyrirsjáanleg, og stórbrotin og stundum hryllileg.

Fegurð í fjöllum og hraunum er síðari alda mál.

Fæðingarhríðir fegurðar

Okkur er eiginlegt flestum að þykja Þingvellir við Öxará undrafögur landspilda, sem slái allt annað út. Það þótti Jónasi Hallgrímssyni líka, en hann sá samt fyrir sér þau reginöfl eyðileggingarinnar sem áttu sviðið árþúsundum áður en fegurðinni var hleypt á staðinn.

Það var þolinmæðisverk fyrir fegurðina og Guð, eins og Jónas bendir á, að draga upp þær myndir og þá liti sem hann gat lofsungið í ljúfsárum ljóðum sínum og þeir Kjarval, Jón Stefánsson og margir aðrir fest á léreft.

Væntir sín

Nú segja jarðfræðingar ótvíræð merki um að Öræfajökull eigi von á sér. Vandinn er sá að meðgöngutíminn er ekki þekktur. Frásagnir eru til um gosin tvö. Það fyrra gerði engin boð á undan sér sem sá tími gat numið.

Nú höfum við mæla og tæki og þekkingu til að staðsetja þau og vakta. Það liggur fyrir hættumat og lagðar hafa verið línur um hvert megi helst halda vakni óvætturin í iðrum jarðar. (Í þessu sambandi er ekki talað um fegurðardrottninguna glæstu enda sannast að þarna er flagð undir fögru skinni.)

Það er ekki tilefni né gagn að hræðsluáróðri um þetta fjall, frekar en Kötlu vestar. En þau verður að þekkja og þau verður að virða. Það er á hinn bóginn komið fullt tilefni til að setja fjallið í algjöra gjörgæslu strax. Miða verður viðbúnað við að gosið gæti orðið í næstu viku.

Vandinn við þetta mikla fjall er einkum sá að það á svo stutt að fara eftir að umbrotin brjótast út. Það er alls ekki hægt að útiloka að slík gjörgæsla gæti staðið um alllanga hríð og kostað töluvert. Jafnvel heilan bragga. Þá það. Á því munum við læra.

Af hinu, að gera ekki allt sem við getum nú þegar, með sem fullkomnustum hætti, gætum við einnig lært.

Það viljum við ekki.

Sumar eldstöðvar standa þannig að hættan er innan marka og tími og tök á að forðast ógnir.

En í okkar tíma er þó ein risavaxin áminning um það sem við vitum að við vitum ekki. Hún snýst um „útdauða“ eldstöð sem gaus í jaðri Vestmannaeyjabæjar. Tjónið varð mikið. Okkur finnst samt stundum sem ekkert tjón hafi orðið þá, þar sem, fyrir kraftaverk, varð ekki manntjón.

Lengi vel voru þær eldstöðvar sem ekki höfðu gosið á sögulegum tíma sagðar útdauðar. Sjálfsagt hafa einhverjir vitað betur. En nú vitum við öll betur.

Snæfellsjökull, það tignarfjall, hefur ekki gosið á „sögulegum“ tíma.

En fyrir alllöngu hafa þeir sem læsir eru á eldstöðvar upplýst okkur um að eldföll hafa aldrei miðað starfsemi sína við okkar sögu í landinu heldur eingöngu við sína sögu þar. Fjölmargar eldstöðvar eru sem betur fer sofnaðar svefninum langa. En ekki allar.

Snæfellsjökull hefur ekki gosið „á sögulegum tíma“ sem er þakkarefni. En hafa verður í huga að það hafa ekki borist neinar tilkynningar beint frá honum um að hann sé hættur. Sérfræðingar þekkja ekki alla sögu hans. En þeir þekkja margt. Og „spor“ hans og „fingraför“ sýna að hans má eiga von. Regla Snæfellsjökuls er allt önnur en Heklu og Kötlu, svo ekki sé talað um Grímsvötn. Nú erum við svo lánsöm að eiga völ á vönduðum búnaði og eigum fólk sem kann með hann að fara. Við skulum spara hvorugt.

Það gæti borgað sig.