Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var fjarri góðu gamni með Aston Villa í gærkvöld vegna meiðsla þegar liðið tók á móti Bolton í ensku B-deildinni í knattspyrnu.
„Þetta eiga ekki að vera alvarleg meiðsli heldur einhver álags- eða þreytumeiðsli og ég get vonandi byrjað að æfa í næstu viku,“ sagði Birkir í samtali við mbl.is í morgun.
Birkir vonast til þess að ná næsta leik sem er gegn Derby á laugardaginn kemur. Íslenska landsliðið leikur síðan gegn Belgum í lokaumferð Þjóðadeildar UEFA í Brussel 15. þessa mánaðar. Fjórum dögum síðar mætir Ísland liði Katar í vináttuleik sem fram fer í Belgíu.
gummih@mbl.is