Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfismat vegna Suðurnesjalínu 2 er á lokametrunum, að sögn Írisar Baldursdóttur, framkvæmdastjóra kerfisstjórnunarsviðs Landsnets.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Umhverfismat vegna Suðurnesjalínu 2 er á lokametrunum, að sögn Írisar Baldursdóttur, framkvæmdastjóra kerfisstjórnunarsviðs Landsnets. „Við vonumst til að geta skilað frummatsskýrslu til Skipulagsstofnunar í þessum mánuði og að geta hafið framkvæmdir síðla næsta árs,“ sagði Íris. Í umhverfismatinu eru m.a. skoðaðar blandaðar leiðir þar sem horft er bæði til loftlína og jarðstrengja.

Viðbúnaðaræfing vegna mögulegs rafmagnsleysis á Suðurnesjum var haldin í stjórnstöð Landsnets í gær. Þar voru æfð viðbrögð við atburðum sem hafa veruleg áhrif á afhendingaröryggi raforku til Suðurnesja. „Það að missa tenginguna við Suðurnesin er einn af þeim atburðum í raforkukerfinu sem hafa hvað mest áhrif í dag,“ sagði Íris. Ástæða þess er að aðeins ein háspennulína tengir Reykjanesið við raforkudreifikerfið. Íris sagði að ekki væri hægt að tryggja viðunandi afhendingaröryggi til jafn stórs samfélags og er á Suðurnesjum með aðeins einni raflínu.

Landsnet
» Landsnet miðar við að tryggja 99,99% afhendingaröryggi raforku.
» Leysi Suðurnesjalína 1 út detta 180 MW út, sem getur valdið straumleysi víðar.