„Við settum fram afar myndarlegt tilboð sem var veruleg hækkun frá því sem við greiðum fyrir enska boltann í dag.
„Við settum fram afar myndarlegt tilboð sem var veruleg hækkun frá því sem við greiðum fyrir enska boltann í dag. Niðurstaðan var hins vegar að ofurtilboð barst úr annarri átt sem engin glóra væri í að jafna,“ segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri hjá Sýn.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur misst sýningarréttinn á ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá og með næsta tímabili.
Magnús Ragnarsson sjónvarpsstjóri staðfestir að Síminn hafi gert tilboð í réttinn.