— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annir eru nú á dekkjaverkstæðum enda mikilvægt að bílar séu komnir á góð dekk þegar fer að snjóa og götur verða hálar. Þessi mynd var tekin hjá Barðanum í Skútuvogi í Reykjavík þar sem vanir menn voru snöggir að afgreiða bílana.
Annir eru nú á dekkjaverkstæðum enda mikilvægt að bílar séu komnir á góð dekk þegar fer að snjóa og götur verða hálar. Þessi mynd var tekin hjá Barðanum í Skútuvogi í Reykjavík þar sem vanir menn voru snöggir að afgreiða bílana. Spáð er snjókomu á Norður- og Austurlandi um helgina og gæti færð þar spillst. Sunnanlands og vestan verður staðan betri þótt allra veðra sé von þegar komið er fram í nóvember.