Tveimur dögum áður en hópmálið var höfðað gegn Volkswagen greindi fyrirtækið frá því að hagnaður fyrirtækisins hefði tvöfaldast á þriðja fjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Tveimur dögum áður en hópmálið var höfðað gegn Volkswagen greindi fyrirtækið frá því að hagnaður fyrirtækisins hefði tvöfaldast á þriðja fjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Í fyrirsögn fréttaveitunnar AFP sagði að Volkswagen hefði skilið keppinautana eftir í rykmekki þrátt fyrir dísilraunirnar og sagði í frétt hennar að fyrirtækið væri greinilega að mjakast út úr skugga útblásturshneykslisins þrátt fyrir yfirvofandi og yfirstandandi málshöfðanir.