Ragnar Jóhannsson
Ragnar Jóhannsson
Ragnar Jóhannsson fór mikinn fyrir Hüttenberg þegar liðið sótti Essen heim í þýsku B-deildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með 24:24-jafntefli en Ragnar var markahæstur í liði Hüttenberg með sjö mörk.

Ragnar Jóhannsson fór mikinn fyrir Hüttenberg þegar liðið sótti Essen heim í þýsku B-deildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með 24:24-jafntefli en Ragnar var markahæstur í liði Hüttenberg með sjö mörk. Þá átti Ragnar eina stoðsendingu í leiknum en hann var með 70% skotnýtingu. Hüttenberg byrjaði leikinn betur og var staðan í hálfleik 13:11, Hüttenberg í vil. Hüttenberg leiddi allan seinni hálfleikinn, allt þangað til tvær mínútur voru til leiksloka, en þá komst Essen yfir. Markus Stegefelt jafnaði metin fyrir Hüttenberg þegar átta sekúndur voru til leiksloka og niðurstaðan því jafntefli. Hüttenberg er í tólfta sæti B-deildarinnar með níu stig eftir fyrstu ellefu leiki sína, tveimur stigum frá fallsæti. bjarnih@mbl.is