Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék sinn sjöunda og næstsíðasta hring á lokaúrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi á NP. 7-vellinum í Norður-Karólínuríki í gær á 72 höggum eða pari vallarins.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék sinn sjöunda og næstsíðasta hring á lokaúrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi á NP. 7-vellinum í Norður-Karólínuríki í gær á 72 höggum eða pari vallarins. Ólafía fékk þrjá fugla og þrjá skolla á holunum 18 í gær og er hún samtals á 20 höggum yfir pari en kylfingurinn hefur verið langt frá sínu besta á lokaúrtökumótinu. Það verður því að teljast afar ólíklegt að hún nái að enda í einu af efstu 45 sætunum og því eru möguleikar hennar um að komast á LPGA-mótaröðina á næsta ári afar litlir, en aðeins einn hringur er eftir af lokaúrtökumótinu.

Ólafía er 13 höggum frá því að komast í efstu 45 sætin en hún er í 89. sæti af 101 keppanda. sport@mbl.is