Kosningar Trump með Josh Hawley, þingframbjóðanda repúblikana í Missouri.
Kosningar Trump með Josh Hawley, þingframbjóðanda repúblikana í Missouri. — AFP
Á þriðjudaginn verður kosið um rúman þriðjung þingmanna í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókratar eiga undir högg að sækja í ár þar sem sitjandi þingmenn flokksins eru í 26 af þeim 35 þingsætum sem kosið er um.

Á þriðjudaginn verður kosið um rúman þriðjung þingmanna í öldungadeild Bandaríkjaþings.

Demókratar eiga undir högg að sækja í ár þar sem sitjandi þingmenn flokksins eru í 26 af þeim 35 þingsætum sem kosið er um. Samkvæmt fjölmiðlum og skoðanakönnunum vestanhafs þykir líklegt að Repúblikanaflokkurinn muni bæta við meirihluta sinn í þingdeildinni.

Metfjöldi kvenna er í framboði í þingkosningunum í ár; 200 konur bjóða sig fram fyrir demókrata og 60 fyrir repúblikana. Samkvæmt könnunum eru hvítar háskólamenntaðar konur miklu líklegri til að styðja demókrata og karlmenn með enga háskólamenntun líklegri til að styðja repúblikana. „Þetta er kynjamunur á sterum,“ segir Celinda Lake, sem vinnur úr niðurstöðum skoðanakannana fyrir demókrata. 22 og 24