Stýrir Sigurður Guðjónsson er annar tveggja sýningarstjóra.
Stýrir Sigurður Guðjónsson er annar tveggja sýningarstjóra.
Brot úr línu/fragment of a line nefnist samsýning sem opnuð verður í dag kl. 14 í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýningarstjórar eru Sigurður Guðjónsson og Gústav Geir Bollason.
Brot úr línu/fragment of a line nefnist samsýning sem opnuð verður í dag kl. 14 í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýningarstjórar eru Sigurður Guðjónsson og Gústav Geir Bollason. Á sýningunni má sjá vídeóverk eftir fjóra unga listamenn; Þorgerði Þórhallsdóttir, Bjarna Þór Pétursson, Hlyn Pálmason og Þorbjörgu Jónsdóttur. Þau eiga það sammerkt að taka sér stöðu á mörkum kvikmyndarinnar og vídeómiðilsins í verkum sínum og sækja áhrif og úrlausnir í báðar þessar greinar þannig að úr verður nýr og spennandi frásagnarmáti sem einkennist af sterkri fagurfræði, leik með tæknilegar eigindir miðilsins og með sýningarrýmið í framsetningu verkanna, eins og fram kemur í tilkynningu. „Í Brot úr línu er hráefnið ljós. Ljósið er ekki aðeins miðill fyrir myndina sem það ber á flötinn, heldur hráefni í sjálfu sér. Það er hráefni í sama skilningi og vísanir, minni, hugmyndir og harður diskur. Hrátt rými verksmiðjunnar er ílát fyrir þetta efni, það geymir það vel, sérstaklega svona innrammað í nóvembermyrkrið. Rými verkanna verður líkamlegt og birtan áþreifanleg. Hér renna saman vísanir í söguna, villur eyðimerkurinnar og leikur barnsins,“ segir þar.