Fótbolti
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Kristján Flóki Finnbogason mun að óbreyttu leika með Start í næstefstu deild Noregs á næsta ári eftir að hafa leikið með Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni seinni hluta síðustu leiktíðar.
Flóki, eins og hann er jafnan kallaður, var seldur frá FH til Start á miðju sumri 2017 og átti sinn þátt í að koma liðinu upp í norsku úrvalsdeildina. Hann lék með Start framan af leiktíðinni í ár en var svo lánaður til Brommapojkarna. Svo fór að bæði lið féllu um deild nú í haust, með miklum naumindum. Start endaði tveimur stigum frá öruggu sæti og Flóki lék báða umspilsleiki Brommapojkarna gegn Eskilstuna, sem Brommapojkarna töpuðu á útivallarmarki.
Sé hvað gerist í janúar
„Ég fer aftur til Noregs 14. janúar. Það er ekkert nýtt í stöðunni hjá mér,“ segir Flóki við mbl.is. en samningur hans við Start gildir til ársins 2020. Hann segir fall liðsins ekki breyta sinni stöðu: „Nei, í rauninni ekki. En maður bíður bara og sér hvað gerist í janúar.“Flóki á að baki fjóra A-landsleiki og hefur skorað í þeim eitt mark, en hann var til að mynda með aðallandsliðshópnum í Katar fyrir rúmu ári síðan þegar liðið hóf undirbúning sinn fyrir HM í Rússlandi. Flóki, sem þrívegis hefur orðið Íslandsmeistari með FH, skoraði átta mörk í 14 deildarleikjum fyrir FH í fyrra og fylgdi því eftir með fjórum mörkum í 10 leikjum í norsku 1. deildinni. Í ár skoraði hann tvö mörk í 12 leikjum fyrir Brommapojkarna eftir að hafa skorað tvö mörk í 13 leikjum fyrir Start. Þrátt fyrir fallið kveðst hann sáttur við sinn tíma í Svíþjóð: