Vera Ein mynda Skaða á sýningunni.
Vera Ein mynda Skaða á sýningunni.
Skrímslin í skápnum nefnist sýning á verkum fjöllistakonunnar Skaða Þórðardóttur sem opnuð verður í Galleríi 78 í Suðurgötu 3 í dag kl. 16. „Til sýnis verða málverk og teikningar unnin með blandaðri tækni.
Skrímslin í skápnum nefnist sýning á verkum fjöllistakonunnar Skaða Þórðardóttur sem opnuð verður í Galleríi 78 í Suðurgötu 3 í dag kl. 16. „Til sýnis verða málverk og teikningar unnin með blandaðri tækni. Verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera gerð þegar Skaði var í skápnum eða nýkomin út og var að átta sig á því hver hún væri í raun og veru. Skaði hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis,“ segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að Skaði hafi útskrifast af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti 2011 og lokið BA-námi í myndlist frá Konunglega listaháskólanum í Haag í Hollandi 2014. Um verk sín á sýningunni segir Skaði: „Fyrir mér eiga allar myndirnar sína eigin tilveru og næstum sín eigin líf, þar sem allar þær fígúrur sem prýða myndirnar hafa sprottið fram af tilviljun frekar en af ásettu ráði. Þegar ég vinn myndirnar þá er ég í samræðum eða rifrildi við hina duldu veröld undirvitundar.“

Sýningin stendur til 2. febrúar.