Dæmdur Michael Cohen yfirgefur dómssalinn á miðvikudaginn.
Dæmdur Michael Cohen yfirgefur dómssalinn á miðvikudaginn. — AFP
Michael Cohen, fyrrverandi lögfræðingur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði í sjónvarpsviðtali við fréttastofu ABC-sjónvarpsstöðvarinnar í gær að Trump hefði vitað að það væri rangt að bjóða tveimur konum, sem sögðust hafa verið í tygjum við hann,...

Michael Cohen, fyrrverandi lögfræðingur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði í sjónvarpsviðtali við fréttastofu ABC-sjónvarpsstöðvarinnar í gær að Trump hefði vitað að það væri rangt að bjóða tveimur konum, sem sögðust hafa verið í tygjum við hann, peningagreiðslur í skiptum fyrir þögn þeirra.

Cohen var dæmdur í þriggja ára fangelsi á miðvikudaginn var fyrir margvísleg lögbrot í starfi, en hann mun hefja afplánun sína í mars á næsta ári. Cohen var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa notað fé, sem eyrnamerkt var kosningabaráttu Trumps, til þess að kaupa þögn klámstjörnunnar Stormy Daniels um meint samskipti hennar við Trump, en slíkt er brot á reglum um fjármál stjórnmálaflokka í Bandaríkjunum.

Þá ítrekaði Cohen að ekkert hefði verið gert án vitneskju Trumps, þar sem allt sem gerðist í fyrirtækjum hans væri borið undir hann. „Hann skipaði mér að framkvæma þessar greiðslur, hann fyrirskipaði mér að kafa ofan í þessi mál,“ sagði Cohen um greiðslurnar.

Þá sagði Cohen að hann teldi ekki að forsetinn hefði sagt allan sannleikann um tengsl framboðs síns við öfl í Rússlandi í aðdraganda kosninganna. Hann vildi þó ekki svara nánar um þetta atriði þar sem hann sagðist ekki vilja tefla í tvísýnu rannsókn sérstaks saksóknara og fleiri á Rússlandstengslunum.

Cohen átti að kunna lögin

Forsetinn hefur fordæmt Cohen á samfélagsmiðlum sínum og sagt að hann hafi veitt sér ranga lögfræðilega ráðgjöf. „Hann var lögfræðingur og á að kunna lögin,“ sagði Trump á fimmtudaginn. Bætti forsetinn við að hann hefði aldrei fyrirskipað Cohen að brjóta lögin. Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og einn af lögfræðingum Trumps, sagði eftir að dómur féll að Cohen væri „raðlygari“ og að ekkert mark væri á honum takandi. sgs@mbl.is