London hefur alltaf upp á margt að bjóða en fyrir jólin breytist Hyde Park í risastóran jólamarkað og tívolí undir nafninu Winter Wonderland, eða Undraveröld vetrarins. Þar er m.a.

London hefur alltaf upp á margt að bjóða en fyrir jólin breytist Hyde Park í risastóran jólamarkað og tívolí undir nafninu Winter Wonderland, eða Undraveröld vetrarins. Þar er m.a. skautasvell, parísarhjól, rússíbanar, sirkussýningar, uppistand fyrir fullorðna og Teletubbies-jólasýning fyrir börnin. Ekki má gleyma viðarbásunum 200 þar sem hægt er að kaupa sérstakar jólagjafir, hefðbundið jólaskraut og smakka eitthvert jólagott. Þarna fást til dæmis skartgripir og föt þannig að það er vel hægt að kaupa fallegar jólagjafir á markaðnum.

Opið er frá 10 á morgnana til 22 á kvöldin.