Tveir fremstu djasspíanistar Ítalíu af yngri kynslóðinni eiga samtal á tvo flygla í Salnum á morgun kl. 20. Alessandro Lanzoni og Giovanni Guidi koma nær beint frá Jazzhátíð Lundúna til Íslands.
Tveir fremstu djasspíanistar Ítalíu af yngri kynslóðinni eiga samtal á tvo flygla í Salnum á morgun kl. 20. Alessandro Lanzoni og Giovanni Guidi koma nær beint frá Jazzhátíð Lundúna til Íslands. Guidi hefur hljóðritað fyrir ECM útgáfuna og Lanzoni fyrir CAM JAZZ. Á efnisskránni eru djassstandardar, dægurlög og frjáls spuni.