Danny Rose í leik með Tottenham Hotspur gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í vikunni.
Danny Rose í leik með Tottenham Hotspur gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í vikunni. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sjaldgæft er að knattspyrnumenn ræði opinberlega um andleg veikindi sín eða að þau spyrjist út, alltént meðan þeir eru enn að spila. Þó eru um það dæmi; lítum á nokkur utan úr heimi.

Sjaldgæft er að knattspyrnumenn ræði opinberlega um andleg veikindi sín eða að þau spyrjist út, alltént meðan þeir eru enn að spila. Þó eru um það dæmi; lítum á nokkur utan úr heimi.

Það vakti heimsathygli þegar þýski landsliðsmaðurinn Sebastian Deisler tilkynnti að hann hefði lagt skóna á hilluna í byrjun árs 2007, aðeins 27 ára gamall. Skýringin var sú að það ætti ekki við hann að leika knattspyrnu en Deisler hafði um tíma glímt við þunglyndi í bland við erfið hnémeiðsli. Hvort tveggja kom niður á sjálfstrausti hans og hann ákvað að láta staðar numið á miðri leiktíð. Félag Deislers, Bayern München, ákvað að rifta ekki samningnum við leikmanninn, heldur greiða honum laun út samningstímann, það er í tvö og hálft ár.

Sparkheimar voru í sárum eftir að þýski markvörðurinn Robert Enke svipti sig lífi síðla árs 2009; henti sér fyrir járnbrautarlest. Eiginkona hans upplýsti að Enke hefði um sex ára skeið glímt við þunglyndi og fengið faglega aðstoð. Eftir að dóttir hans lést árið 2006 átti hann sérlega erfitt uppdráttar og sá ekki aðra leið út úr erfiðleikum sínum.

Ógnaði manni á förnum vegi

Enski landsliðsmaðurinn Stan Collymore átti mjög erfitt uppdráttar á vellinum eftir að hann ræddi fyrst opinberlega um þunglyndi sitt árið 1999 og lagði skóna á hilluna tveimur árum síðar, þrítugur að aldri. Lítill vafi leikur á því að veikindin léku þar stórt hlutverk. Collymore hefur náð sér ágætlega á strik í seinni tíð sem sparkskýrandi í sjónvarpi.

Enski landsliðsmaðurinn Aaron Lennon, sem nú leikur með Burnley, var handtekinn vorið 2017 fyrir að ógna öryggi manns á almannafæri og í framhaldinu vistaður á sjúkrahúsi, þar sem hann hlaut meðferð vegna sjúkdóms sem sagður var álagstengdur. Hann var frá keppni um tíma en er kominn á fulla ferð aftur.

Annar enskur landsliðsmaður, Danny Rose hjá Tottenham Hotspur, steig fram og talaði opinskátt um þunglyndi sitt síðasta vor en það spratt upp úr erfiðum meiðslum sem leikmaðurinn glímdi við mánuðum saman. Vakti saga hans mikla athygli og fékk ófáa dálksentimetra í heimspressunni. Rose fór í framhaldinu með enska landsliðinu á HM í Rússlandi en hefur verið inn og út úr liði Tottenham í vetur.

Svívirðingar á velli

Illmælgi og almennur dónaskapur áhorfenda í garð knattspyrnumanna þekkist víða og skemmst er að minnast þess að skoski leikmaðurinn David Cox var hvattur til að „hengja sig og gera það almennilega næst“ meðan á leik stóð skömmu eftir að hann ræddi opinberlega um andleg veikindi sín og sjálfsvígstilraunir. Að sögn Cox voru það ekki bara stuðningsmenn andstæðinga liðs hans, Cowdenbeath, sem létu aursletturnar ganga yfir hann heldur einnig leikmenn. Ummæli eins og „passaðu á þér púlsinn, lagsi“ og „eins gott að æsa þig ekki upp, þú ert geðsjúklingur“ heyrðust í hita leiksins. Cox segir þetta gott dæmi um það að fólk líti ekki á andleg veikindi sem sjúkdóm vegna þess að menn beri slík veikindi ekki endilega með sér.

Clarke Carlisle, sem lengst lék með Burnley og var um tíma formaður Samtaka atvinnuknattspyrnumanna á Englandi, er annar leikmaður sem hefur opinberlega viðurkennt að hafa reynt að svipta sig lífi vegna þunglyndis. Hann fleygði sér fyrir vörubíl árið 2014, skömmu eftir að knattspyrnuferlinum lauk, stórslasaðist en lifði af. Á síðasta ári hugðist hann aftur binda enda á eigið líf en var stöðvaður af fólki á förnum vegi.