Janet Jackson
Janet Jackson — AFP
Tónlist Búið er að tilkynna hvaða tónlistarfólk verður innlimað í frægðarhöll rokksins árið 2019; Radiohead, Janet Jackson, Stevie Nicks, Def Leppard, The Cure, Roxy Music og The Zombies.

Tónlist Búið er að tilkynna hvaða tónlistarfólk verður innlimað í frægðarhöll rokksins árið 2019; Radiohead, Janet Jackson, Stevie Nicks, Def Leppard, The Cure, Roxy Music og The Zombies. Þau verða vígð inn í frægðarhöllina við hátíðlega athöfn í Barclays Center í Brooklyn 29. mars á næsta ári.

Til þess að geta hlotið þennan heiður þurfa 25 ár að vera liðin frá útgáfu fyrstu plötu eða smáskífu tónlistarmannsins eða sveitarinnar. Nicks komst fyrst inn í frægðarhöllina sem hluti af Fleetwood Mac árið 1998.