Fyrir fjóra (miðað við hálfan kjúkling á mann)
3 skallottlaukar, skornir
2 stk. Scotch bonnet-chilipipar (notið halapeno ef hann fæst ekki), skorinn gróft
2 hvítlauksrif, skorin
1 msk five-spice-krydd
1 msk allrahanda
1 msk nýmalaður pipar
1 tsk ferkt tímían, laufin tínd af
1 tsk rifið múskat
1 tsk salt, eða eftir smekk
½ bolli sojasósa
1 msk matarolía
2 heilir kjúklingar, teknir í tvennt
2 mjölbananar, skornir þunnt og steiktir á pönnu í smá smjöri, látið kólna
4 skallottpönnukökur
Látið vélina vinna áfram og bætið út í sojasósu og olíu. Hellið maríneringunni í stóra grunna skál og leggið kjúklingahelmingana ofan í löginn. Veltið kjúklingnum upp úr maríneringunni. Breiðið yfir skálina og setjið inn í ísskáp í nokkrar klukkustundir en má vera yfir nótt.
Grillið kjúklinginn á grilli eða í ofni á háum hita þar til tilbúinn.
Skallottpönnukökur
1 2/3 bollar vatn
1/4 bolli sesamolía
3/4 tsk salt
2 búnt skallottlaukur
olía til steikingar
Skerið skallottlaukinn, en hendið rótinni og skerið smávegis af grænu endunum. Setjið út í deigið.
Hitið tvær tsk af olíu á pönnu yfir miðlungshita.
Steikið pönnukökurnar þegar pannan er orðin vel heit. Notið u.þ.b. ¾ bolla af deigi fyrir hverja pönnuköku. Eldið í fjórar mínútur og snúið svo við og eldið á hinni hliðinni. Gott getur verið að bæta smá olíu við áður en þið snúið.
Takið pönnukökur af pönnu og látið liggja á eldhúspappír til þess að öll aukaolía fari af.
Gott getur verið að steikja á tveimur pönnum í einu.
Leggið pönnuköku á disk og hálfa kjúklinginn ofan á. Raðið mjölbananabitum ofan á.
Gott að bera fram með pikkluðum rauðlauk, ferskum kryddjurtum og góðri sterkri sósu.