Konu af Norðurlandi dreymdi vinningstölurnar í Víkingalottói og voru hún og eiginmaður hennar lukkuleg þegar þau komu með vinningsmiðann frá 28. nóvember á skrifstofu Íslenskrar getspár. Unnu þau rúmar þrjár milljónir í þriðja vinning.

„Frúna dreymdi tölurnar, dreif sig á næsta sölustað og keypti 2 raðir í Víkingalottó fyrir aðeins 200 krónur,“ segir í frétt frá Íslenskri getspá. Vinningurinn komi sér vel því hjónin hafi verið farin að huga að því að endurnýja fjölskyldubílinn.