Grace Carter er rísandi stjarna.
Grace Carter er rísandi stjarna.
Tónlist Breski hluti Amazon í tónlist hefur kunngjört hvaða tónlistarmönnum heimsbyggðin ætti að fylgjast með á árinu 2019. Þeirra á meðal eru Grace Carter, Ashnikko, Black Futures, Serine Karthage og Jimothy Lacoste sem talin eru rísandi stjörnur.
Tónlist Breski hluti Amazon í tónlist hefur kunngjört hvaða tónlistarmönnum heimsbyggðin ætti að fylgjast með á árinu 2019.

Þeirra á meðal eru Grace Carter, Ashnikko, Black Futures, Serine Karthage og Jimothy Lacoste sem talin eru rísandi stjörnur.

Það þykir mikill heiður að lenda á þessum lista og Grace Carter sagði í viðtali af þessu tilefni að hún væri afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu sem myndi án efa styðja mikið við feril hennar á næsta ári. Listann í heild er hægt að finna á Amazon Music.