Lára Bryndís Eggertsdóttir
Lára Bryndís Eggertsdóttir
Klais-orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992 og hefur sú hefð skapast að halda jólatónleika með orgelinu kringum vígsluafmælisdag orgelsins. Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika á morgun, sunnudag, kl.

Klais-orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992 og hefur sú hefð skapast að halda jólatónleika með orgelinu kringum vígsluafmælisdag orgelsins. Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika á morgun, sunnudag, kl. 17 með Láru Bryndísi Eggertsdóttur, organista Hjallakirkju í Kópavogi, en hún er nýflutt aftur heim til Íslands eftir 10 ára dvöl í Danmörku við nám og störf.

„Lára Bryndís gjörþekkir Klais-orgelið eftir að hafa stundað þar nám og starfað sem afleysingaorganisti en hún útskrifaðist með hæstu einkunn þegar hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar 2002, þar sem Hörður Áskelsson, organisti kirkjunnar, var kennari hennar. Hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014, þar sem aðalkennarar hennar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf. Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Sønderbro-kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum, en hóf störf sem organisti Hjallakirkju sl. haust,“ segir í tilkynningu.

Á efnisskrá tónleikanna eru verk tengd aðventu og jólum eftir J.S. Bach, Daquien og Brahms. Miðasala er við innganginn og á midi.is.