Það er líka einhver óvænt rómantík í loftinu sem á líka við um langtímasambönd, hún er eins og ástfanginn unglingur þótt sambandið hafi varað í tugi ára þess vegna.

Vogin er á útopnu árið 2019 og hún verður skyldum hlaðin gagnvart fjölskyldu sinni. Það slaknar smám saman á þessu annríki og vogin verður ánægð með ársverkið og þá þróun sem hefur orðið á lífinu í lok árs. Enda er líka alls kyns til að gleðjast yfir og sérstaklega verður hjónabandið hamingjusamt þar sem vogir sem eiga löng sambönd að baki hafa sjaldan verið hamingjusamari.

Það er ljóst að það verða áskoranir í ár innan fjölskyldunnar sem er ekki hægt að forðast. Það verður einhver utanaðkomandi truflun, dramatísk sprenging sem gæti tengst foreldrum, systkinum eða tengdafjölskyldu, um tíma má segja að það ríki ringulreið. Hugaðu vel að andlegri líðan þinni og þinna nánustu, kannski er einhver vanlíðan sem sést ekki á yfirborðinu og fjölskyldumeðlimir gætu sýnt á sér hliðar sem þú áttir ekki von á. Þetta gæti líka tengst einhverjum veraldlegum efnum, miklum útgjöldum vegna viðgerða á heimilinu en hvað sem það verður, er þetta hálfgert neyðarástand. Vogin er svo heppin að vera vel í stakk búin, hún hefur krafta, útsjónarsemi og fjármagn ef þarf til að leysa úr þessu en vissulega tekur það orku.

Raunar bjóðast voginni eða hennar allra nánustu mjög spennandi aukaverkefni sem munu gefa vel af sér og vogin nýtur þess að ferðast. Fjárhagslega hefur vogin átt mjög gott ár, hún hefur náð markmiðum sem hún setti sér í bókhaldinu en ætti að passa sig að halda áfram á réttri braut því einhver henni náinn gæti þurft tímabundna aðstoð með sitt.

Samanborið við lífið eins og það var fyrir sjö árum finnst voginni hún á betri og skemmtilegri stað félagslega, henni finnst það fólk sem hún á í samskiptum gefa henni mikið og hamingjan auðsóttari. Það er líka einhver óvænt rómantík í loftinu sem á líka við um langtímasambönd, hún er eins og ástfanginn unglingur þótt sambandið hafi varað í tugi ára þess vegna.

Sama á ekki alveg við um einhleypar vogir, það er ólíklegt að þær bindi sig í samband á árinu en það truflar þær ekkert sérstaklega því þær munu kynnast spennandi fólki og ættu að spara kraftana fyrir árið 2020 séu þær spenntar fyrir að fara í samband.

Það vekur sérstaka athygli hvað hjónabönd eru góð í ár hjá voginni en ekki aðeins á rómantískum nótum heldur munið þið vinna saman að ýmsum verkefnum og jafnvel fara út í einhverjar tilraunir með verkefni sem skila ykkur fjárhagslegum ávinningi. Með það bak við eyrað skal vogin muna að svo sterk í gruninn, með sálufélagann sér við hlið, getur hún hvað sem er.