Umferðin á síðasta ári, 2018, jókst um 4,6% yfir 16 lykilteljara á hringveginum miðað við árið 2017.

Umferðin á síðasta ári, 2018, jókst um 4,6% yfir 16 lykilteljara á hringveginum miðað við árið 2017.

Þó að heildaraukning yfir árið sé talsverð þarf að fara aftur til ársins 2013 til að finna minni aukningu á milli ára, segir í frétt á vef Vegagerðarinnar. Mest var aukning umferðar árið 2016, eða 14,4%.

Mest jókst umferðin 2018 um Suðurland eða um 7,4% en minnst um Norðurland eða um 2,5%. Umferðin jókst alla vikudaga og hlutfallslega mest á mánudögum eða 4,8% en minnst jókst umferðin á sunnudögum eða um 1,5%. Mest var ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.

Umferðin í nýliðnum desembermánuði jókst um 3,4% miðað við sama mánuð árið 2017. Þá er ljóst að umferðin jókst í öllum mánuðum ársins fyrir utan febrúar en þá varð 2,6% samdráttur. Mest jókst umferðin í desember um Vesturland eða um 6,4% en minnst varð aukningin um Norðurland eða um 1,3%. Mögulega hefur niðurfelling gjaldskyldu í Hvalfjarðargöngum orðið til þess að umferðin hafi aukist þetta mikið, á Vesturlandi, umfram aðra landshluta, segir í fréttinni á vef Vegagerðarinnar.

Næstmest jókst umferðin um Suðurland eða um 5,1%. Vegagerðin tók við rekstri Hvalfjarðarganga síðastliðið haust.

Mælakerfi stofnunarinnar telur þau ökutæki sem aka um göngin.

sisi@mbl.is