Rétti liturinn. S-Allir
Norður | |
♠3 | |
♥ÁD98765 | |
♦G109 | |
♣85 |
Vestur | Austur |
♠109875 | ♠ÁKDG6 |
♥2 | ♥43 |
♦65 | ♦432 |
♣DG1062 | ♣Á43 |
Suður | |
♠42 | |
♥KG10 | |
♦ÁKD87 | |
♣K97 |
Suður spilar 3G dobluð.
Keppnisspilarar vita vel að dobl á þremur gröndum er einhvers konar ábending um útspil. Eins og prófessor Lárus lækjarbotn orðar það: „Þetta er leiðbeinandi dobl sem biður makker um að koma út með rétta litinn.“
Bridspenninn Frank Vine skrifaði skemmtilegar greinar í The Bridge World á áttunda áratugnum þar sem prófessorinn (Cornelius Coldbottom) og fleiri andhetjur spilaborðsins koma við sögu. Hér var Vine í austur og beitti útspilsvísandi dobli eftir sagnirnar 1G í suður og 3G (!) í norður. Vine doblaði, sem sagt, til að biðja um „rétta litinn“ út og prófessorinn kom út með hjartatvistinn.
Þetta spil var Vine tilefni til að efast um útspilsreglu prófessorsins: „Er ekki betra að biðja bara um einhvern tiltekinn lit út?“ stakk hann upp á.
„Og taka alla spennu úr spilinu? Þú ert galinn!“