— Morgunblaðið/Eggert
Kakó- og kleinusalarnir duglegu létu ekki kuldann á sig fá um helgina og voru með heimasmíðaða söluvagninn við Gróttu eins og marga laugardaga.
Kakó- og kleinusalarnir duglegu létu ekki kuldann á sig fá um helgina og voru með heimasmíðaða söluvagninn við Gróttu eins og marga laugardaga. Bræðurnir Daníel Ólafur og Róbert Frímann Stefánssynir Spanó hafa meðal annars notað ágóðann til að styrkja þyrlusjóð Landhelgisgæslunnar. Af því tilefni bauð Gæslan þeim í þyrluferð í janúar á síðasta ári sem var þeim ógleymanlegt ævintýri.