Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson
Eftir Guðna Ágústsson: "Þótt gott sé nú að græða, Ólafur minn Stephensen, þá er betra að berjast með móður jörð og landbúnaði sem skilar því besta og ógnar ekki lífi og heilsu mannkynsins."

Þeir komu fram í sjónvarpsfréttum laugardagskvöldið 5. janúar sl. prófessorinn og yfirlæknir Landspítalans, Karl G. Kristinsson, og bissnessmaðurinn Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Karl ræddi læknavísindi og mestu heilsuógn samtímans, ógeðslega sýklalyfjanotkun í landbúnaði bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Karl var að koma af ráðstefnu þar sem færustu læknar og vísindamenn ræddu vandann, sem er sá að 70-80% allra sýklalyfja fara í búfénað. Til að anna síaukinni eftirspurn eftir kjöti eru lyfin sett í fóður til að auka vöxt til að koma í veg fyrir sjúkdóma. Sýklalyfin eru svona nýtt bragðefni á tungubroddinum í þessum heimsálfum, en manneskjan fyllist sýklalyfjaóþoli. 99% kjúklingakjöts og 95% svínakjöts þar eru framleidd í verksmiðjubúum. Karl sagði að kjötið innihéldi mikið af bakteríum sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og úrgangurinn skilaði sér svo út í jörð og vatn og þannig í grænmetið. Karl varar alveg sérstaklega við innfluttu grænmeti en einnig kjöti, segir eftirlitið slakt hér og vill af þessum ástæðum að Ísland setji sér þau markmið að verða sjálfbært í framleiðslu landbúnaðarafurða. Að íslenskum bændum verði falið að anna eftirspurn eftir öllu kjöti, mjólkurvörum og grænmeti, ekki síst til að verja heilsu unga fólksins og ófæddra.

Ólafur niðurlægði prófessorinn og vísindin

Enginn skilur af hverju Ólafur Stephensen var kallaður í viðtal í sama fréttatíma og Karl. Ólafur veit lítið í læknisfræði og sennilega minna í vísindum en auðvitað mikið í „frelsi“. En stundum er eins og RÚV skammist sín ef komið er við rétttrúnaðargræðgina. Ég hefði viljað sjá þann lækni eða prófessor sem hefði gengið fram og andmælt orðum og rökum Karls þetta kvöld. Eðlilegt framhald fréttarinnar hefði verið viðtal við heilbrigðis- eða forsætisráðherra því þessi mikla ógn mannkynsins, sýklalyfjaóþol og dýrasjúkdómar, er til umræðu meðal vísinda- og stjórnmálamanna um allan heim.

Ólafi Stephensen brást hins vegar ekki pólitísk verslunargræðgi enda étur hann grautinn sinn hjá heildsalastéttinni og hefur hagsmuni af að berjast fyrir innflutningi. Ég vil hins vegar efast um að allir hans félagar leyfi sér að fylgja honum í glórulausri lítilsvirðingu hans á ummælum prófessorsins. Því Ólafur vændi Karl um að vera í pólitískri herför en ekki vísindalegri umræðu. Læknar hafa eitt fram yfir margar aðrar stéttir; þeir eru bundnir læknaeiðnum (Hippókratesareiðnum). Íslenska útgáfan af eiðnum var útfærð 1932 og undir þau heitorð hafa nánast allir læknar hér ritað eiðstaf sinn síðan, segir google. Ólafur fullyrti að skoðun Karls væri skoðun „eins vísindamanns en aðrir vísindamenn hefðu aðra skoðun“. Jahá, heyr á endemi, Karl stendur einn? Ennfremur sagði hann að „það væru veik tengsl á milli sýklalyfjanotkunar í landbúnaði og sýklalyfjaónæmis í mönnum“. Ekki vildi ég gera þig að lækni mínum, Ólafur Stephensen.

Heiti á þig, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ætli ráðamenn okkar geri sér grein fyrir hvað hraðinn er mikill og innflutningurinn eykst stöðugt? Á fimm árum hefur innflutningur á kjúklingakjöti aukist úr 500 tonnum í 1.400 tonn og 25% af öllu svínakjöti eru flutt inn, var 4% fyrir fimm árum, og nautakjötið farið á sama tíma úr 190 tonnum í 850. Næstu fimm árin gætu lagt íslenska framleiðslu og landbúnað að velli verði ekki brugðist við.

Lifandi dæmisaga: Sá er þetta ritar fór á glæsilegt veitingahús í Reykjavík að borða með góðu fólki. Þjónninn kom með matseðilinn og mælti sérstaklega með nauti frá Bandaríkjunum, þó var íslenskt naut á matseðlinum. Spurt var: En frá hverjum er grænmetið? Ég veit það ekki, svaraði þjónninn.

Gæti það nú ekki verið góð landkynning hér að bera fram matseðil með íslensku grænmeti nauti, lambi, kjúklingi eða svíni og kynna í leiðinni einstakt matvælaland fyrir erlendum sem innlendum gestum?

Þegar Ólafi tók að „vefjast tunga um tönn“ dró hann landamæravörslu á EES-svæðinu og fisk inn í umræðuna. Allt er að breytast og alltaf er nauðsyn að endurskoða eða segja upp samningum við breyttar aðstæður.

Um þessa nýju ógn í sýklalyfjaónæmi og hvernig landbúnaðurinn okkar er að tapa markaðnum hér ætti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að taka upp umræðu við ráðherra sína, lækna, vísindamenn og Bændasamtökin og setja í gang umræðu um markmið um að treysta matvælalandið Ísland.

Þótt gott sé nú að græða, Ólafur minn Stephensen, þá er betra að berjast með móður jörð og landbúnaði sem skilar því besta og ógnar ekki lífi og heilsu mannkynsins. Því þar er hinn dýrmæti gróði, lýðheilsan, hún er dýrmætari en allir „silfurpeningarnir“.

Karl G. Kristinsson, þú varst sannfæringu þinni trúr ,,því eigi veldur sá er varar“.

Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra.

Höf.: Guðna Ágústsson