Hrefna Svava Guðmundsdóttir fæddist 27. maí 1925. Hún lést 17. desember 2018.

Útför Hrefnu fór fram 3. janúar 2019.

Elsku amma mín. Mig langar að þakka þér fyrir allt. Við höfum alltaf verið stór hluti af lífi hvor annarrar, þá sérstaklega síðustu ár, og ég mun sakna þín mikið.

Upp í hugann koma margar sögur og minningar sem ég gæti rifjað upp hér, en það sem einkennir þær allar er góðmennskan, þolinmæðin, jákvæðnin og hlýjan sem alltaf stafaði frá þér. Þú varst einfaldlega best og studdir alltaf við bakið á mér. Við tvær gátum eytt ómældum tíma saman án þess að láta okkur leiðast. Það var alltaf einhver sérstök tenging á milli okkar.

Ég mun aldrei gleyma okkar síðasta fundi hinn 12. desember. Þá sat ég lengi hjá þér, það lá vel á þér. Við hlustuðum á jólatónlist, töluðum, borðuðum súkkulaði og hlógum.

Það var aldrei langt í húmorinn hjá þér, sama hvað gekk á. Ég vissi ekki að þetta væri okkar síðasta stund saman en ég hefði ekki viljað hafa hana öðruvísi því hún endurspeglaði okkar samband vel.

Ég veit að nú líður þér vel, elsku amma, og ert með frið í hjarta.

Þín

Freyja.