Baldur Arnarson baldura@mbl.is Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), segir verkföll geta reynst ferðaþjónustunni erfið. „Við getum alveg talað íslensku.

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), segir verkföll geta reynst ferðaþjónustunni erfið.

„Við getum alveg talað íslensku. Svigrúmið til launahækkana í ferðaþjónustu er líklega minna en í mörgum öðrum atvinnugreinum. Verði hér langvarandi árásir á ferðaþjónustu í heild sinni, eða á hluta hennar, gætum við horft upp á að einhver fyrirtæki leggi hreinlega upp laupana. Staðan er bara þannig,“ segir Jóhannes Þór og bendir á tölur Hagstofunnar um afkomu hvalaskoðunarfyrirtækja. Þær tölur bendi til að afkoma fyrirtækjanna hafi verið neikvæð um 3 milljónir króna í fyrra fyrir fjármagnsliði.

Matvörubúðum lokað strax

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri hjá Festi, sem rekur N1 og Krónuna, segir fyrirtækið hafa almenna viðbragðsáætlun ef það komi til verkfalla. Hún tryggi að til sé meira eldsneyti á dælustöðvum en almennt. Hins vegar lokist matvörubúðir þegar verkföll skella á. Þær verði enda ekki mannaðar með öðru starfsfólki. Hann segir umræðuna um verkföll og launakröfur hafa haft neikvæð áhrif á verslun að undanförnu. Ef farið verði að launakröfum verkalýðshreyfingarinnar muni það auka launakostnað hjá Festi um 2 milljarða. Slíkt kalli á verðhækkanir, uppsagnir eða hvort tveggja

Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, segir kaupmenn ræða um að hækka verð ef laun hækka mikið. Veitingamenn hafi áhyggjur af stöðunni.

Flugumferðarstjórar með lausan samning
» Isavia hefur gert viðbragðsáætlun ef verkföll raska starfsemi á Keflavíkurflugvelli í kjaradeilunni framundan.
» Samningar hjá einum hópi, þ.e. flugumferðarstjórum, runnu út nú um áramótin.
» Samningar annarra hópa renna út í mars eða apríl.