— Morgunblaðið/Eggert
Búið er að rífa hluta Landssímahússins sem sneri að Kirkjustræti og opna inn í port sem var í byggingunni. Sem kunnugt er vinnur Lindarvatn að því að reisa hótel á Landssímareitnum.

Búið er að rífa hluta Landssímahússins sem sneri að Kirkjustræti og opna inn í port sem var í byggingunni.

Sem kunnugt er vinnur Lindarvatn að því að reisa hótel á Landssímareitnum. Minjastofnun hefur nú skyndifriðað þann hluta hins forna Víkurkirkjugarðs sem er innan byggingarsvæðisins. Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Lindarvatns sagði við mbl.is í gærkvöldi að skilyrði fyrir skyndifriðuninni væru ekki fyrir hendi og engar minjar á því svæði sem hún tekur til. 8