Skipulögð Virpi Jokinen nýtir skipulagshæfileikana til að hjálpa öðrum að ná stjórn á alls kyns óreiðu.
Skipulögð Virpi Jokinen nýtir skipulagshæfileikana til að hjálpa öðrum að ná stjórn á alls kyns óreiðu. — Ljósmynd/Á réttri hillu
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Frægðarsól hinnar japönsku Marie Kondo heldur áfram að rísa en á dögunum voru kynntir til leiks Netflix-þættir með þessum þekkta tiltektarráðgjafa og höfundi.

Hulda Bjarnadóttir

hulda@k100.is

Tiltektarfræði og mínimalískur lífsstíll er gjarnan kenndur við Marie Kondo í seinni tíð og þá gjarnan talað um „KonMari-aðferðina,“ en sú aðferð gengur meðal annars út á að taka til eftir flokkum í staðinn fyrir staðsetningu og að finna hversu mikla gleði hlutirnir veita manni, til að auðvelda ákvörðun um að halda eða sleppa. Hérlendis starfa orðið einstaklingar sem veita faglega ráðgjöf í skipulagi, ein af þeim er Virpi Jokinen.

Marie Kondo hefur gefið út nokkrar bækur um málefnið. Sú fyrsta, The Life-Changing Magic of Tidying Up: The Japanese Art of Decluttering and Organizing, kom út árið 2011 og var gefin út í yfir 30 löndum. Sú bók varð metsölubók í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum og árið 2015 var hún valin einn áhrifamesti einstaklingurinn hjá tímaritinu Time. Í upphafi þessa árs kynnti Netflix-streymisveitan þættina með Marie til leiks og hafa þeir slegið í gegn.

„Það eiga allir svo mikið“

Logi og Hulda hafa verið að ræða og kynna sér þennan lífsstíl og skipulagshæfni á K100 undanfarið. Á dögunum ræddu þau við Virpi Jokinen, sem starfaði áður sem skipulagsstjóri Íslensku óperunnar, en rekur í dag fyrirtækið „Á réttri hillu“, sem býður skipulagsaðstoð fyrir heimili og fyrirtæki.

Hún segir fræðin þó eldri en Marie Kondo sjálfa, því upp úr 1980 voru „Professional organisers“ farnir að láta til sín taka í Bandaríkjunum. Sjálf fór hún að fylgjast með þessu af fullri alvöru fyrir ári í Finnlandi og að lokum ákvað hún að bjóða slíka þjónustu.

„Ég held að það sé þörf fyrir þetta því það eiga allir svo mikið, við erum að kaupa svo mikið,“ segir Virpi. Þannig telur hún að þörfin og eftirspurnin sé að skapast núna í takt við aukna umræðu um endurvinnslu, neyslu og fleira. Virpi hefur haft nóg að gera frá stofnun fyrirtækisins og segist hún fá mikið út úr því að aðstoða fólk við að ná tökum á ákveðinni óreiðu. Hún nálgast fólk á þeim stað sem það er statt og segir hún stöðuna mjög ólíka. Sumir skammist sín orðið fyrir heimilið sitt vegna óreiðu og bjóði þar af leiðandi ekki lengur heim, segir hún. Það er ekki algengt, en ekki óeðlilegt heldur. Fólk þurfi hjálp þegar það er komið í þessa stöðu.

Skáparnir eiga að þjóna eigandanum

„Fötin eru oft að þvælast fyrir,“ segir hún, spurð um það sem fólki þyki flóknast. Því mælir hún með að fólk byrji á fötunum ef tiltekt stendur til. Hún segir að skáparnir eigi að þjóna eiganda sínum. Flíkin á að kalla á mann, segir hún. „Hvað get ég gert fyrir þig? Veldu mig“ á nánast að heyrast þegar fólk opnar fataskápinn sinn, segir hún og uppsker hlátur. Hún er ekki endilega á því að taka allt út úr skápunum og búa til hrúgu í upphafi líkt og Marie prediki, en að svona mál þurfi að vinna markvisst.

Hún leggur til að fólk gefi sér allt að ár í almennilega tiltekt, en hún segir alla geta gert þetta og þá þurfi svolítið að hafa að leiðarljósi hvaða hlutir og hvernig umhverfi veiti manni raunverulega gleði.