Ásgerður Leifsdóttir fæddist að Kjarlaksstöðum á Fellsströnd í Dalasýslu 10. október 1921. Hún lést á Droplaugarstöðum 19. desember 2018.

Foreldrar hennar voru Leifur Grímsson, f. 1896, d. 1983, og Hólmfríður Sigurðardóttir, f. 1892, d. 1968. Ásgerður var næstelst sjö systkina.

Árið 1946 giftist hún Ebenezer Guðjónssyni, f. 16. desember 1915, d. 19. apríl 1989. Eignuðust þau þrjú börn: Leif Jóel, Hólmfríði Elínu og Grétu Hrönn.

Útför Ásgerðar hefur farið fram í kyrrþey.

Elsku mamma mín.

Ég sendi þé kæra kveðju,

nú komin er lífsins nótt.

Þig umvefji blessun og bænir,

ég bið að þú sofir rótt.

Þó svíði sorg mitt hjarta

þá sælt er að vita af því

þú laus ert úr veikindum viðjum,

þín veröld er björt á ný.

Ég þakka þau ár sem ég átti

þá auðnu að hafa þig hér.

Og það er svo margs að minnast,

svo margt sem um hug minn fer.

Þó þú sért horfin úr heimi,

ég hitti þig ekki um hríð.

Þín minning er ljós sem lifir

og lýsir um ókomna tíð.

(Þórunn Sigurðardóttir)

Þín

Fríða.

Lítill himnagluggi opnast milli skýjanna og stækkar smám saman þar til glittir í bláan himin, birtu sólar og eilíft ljós. Hlið himins ljúkast upp og Drottinn tekur þreytt Guðsbarn í faðm sinn.

Það ætlaði aldrei að birta þennan dag í desember þótt jólaljósin væru nánast alls staðar. Himinninn var þungbúinn og jörðin alauð þegar kveðjustundin rann upp. Á náttborðinu lá Bæn Gísla á Uppsölum.

Ásgerður tengdamóðir mín kvaddi södd lífdaga rúmlega 97 ára gömul. Hún lifði tíma mikilla breytinga og í hennar ungdæmi voru möguleikar til náms og starfsframa fáir, ekki síst fyrir ungar stúlkur sem fæddar voru fyrir tæpri öld. Hún talaði þó sjaldan um draumana sem ekki rættust.

Ása hafði góða menntun úr skóla lífsins sem nýttist vel hvort sem það tengdist heimili og fjölskyldu eða þeim störfum sem hún tók að sér og sinnti bæði af trúmennsku og kærleika. Einnig kom sér áreiðanlega oft vel að kunna þá list að gera mikið úr litlu.

Hún prjónaði mikið og saumaði og stóð fyrir mörgum veislum bæði stórum og smáum sem bæði ég og aðrir nutu góðs af. Hlutirnir virtust oft gerast sjálfkrafa og hún hafði alltaf tíma til að hlusta og vera til staðar fyrir fólkið sitt.

Ása var ekkja í tæp 30 ár og fór því á mis við góðu árin sem hún ætlaði líka að eyða með elskunni sinni þegar bæði væru hætt að vinna. Það reyndi verulega á að endurheimta lífsviljann aftur þegar Ebenezer tengdafaðir minn féll frá og hún talaði stundum um nálægð hans þrátt fyrir langan aðskilnað.

Veri þau bæði Guði falin og þökk fyrir kærleika og umhyggju í minn garð og minna alla tíð.

Sigríður Ísleifsdóttir.

Við stöndum á þeim tímamótum að nú kveðjum við elskulega ömmu okkar Ásgerði, Ásu ömmu. Jólin eru nýliðin og við systkinin eigum margar yndislegar minningar um öll jólin sem við fögnuðum með ömmu á hennar heimili í Heiðargerðinu. Eins voru amma og Heiðargerðið fastur punktur á okkar uppvaxtarárum í útlöndum og var upplifunin alltaf að vera komin heim þegar við vorum hjá henni yfir sumarfrí eða jól. Amma veitti okkur mikla ást og hlýju, eins gaf hún vel í skyn að hún vildi fá okkur í heimsókn jafn mikið og unnt væri.

Þegar við ræðum minningar um ömmu verður okkur hugsað til litla klinkveskisins, sem hún fór alltaf í eða leyfði okkur að skrapa saman úr, til að fara út í bakarí til að kaupa snúð og svala. Það var mjög spennandi fyrir ung börn. Eins leitar hugurinn að fallega garðinum hennar sem hún unni mikið. Mörgum góðum stundum höfum við eytt með henni í garðinum og að sitja við stofugluggann með henni og dást að fallegu blómunum á sumrin og fuglunum á veturna. Margar eru minningarnar sem við eigum um hana og stendur ástin og hlýjan sem nærvera hennar veitti okkur upp úr.

Eva, Bjarni, Alvin og

Andri Freyr.

Ég kveð þig með sorg og söknuði í hjarta, elsku amma mín.

Ég á svo margar dýrmætar og góðar minningar um þig og þær ætla ég að varðveita eins og fjársjóð. En ég veit að þú fékkst loks þína langþráðu hvíld.

Ég vona svo heitt og innilega að þið afi séuð loksins sameinuð á ný.

Hve indælt það verður ykkur

aftur að sjá

í alsælu og fögnuði

himninum á.

Bless, elsku amma mín, minning þín verður ljós í lífi okkar.

Þín

Elín.

Elsku amma.

Það er erfitt að kveðja,

Loksins eruð þið afi saman eftir öll þessi ár.

Mig dreymdi þig um daginn og þú varst svo ánægð og hamingjusöm, þú hafðir hitt Ebba afa og sagðir að það lægi svo vel á honum, þú varst svo ungleg og hress.

Þannig mun ég hugsa til þín, hamingjusama með afa.

Þegar raunir þjaka mig

þróttur andans dvínar

þegar ég á aðeins þig

einn með sorgir mínar.

Gef mér kærleik, gef mér trú,

gef mér skilning hér og nú.

Ljúfi drottinn lýstu mér,

svo lífsins veg ég finni

láttu ætíð ljós frá þér

ljóma í sálu minni.

(Gísli á Uppsölum)

Þín

Thelma.

Á fyrstu árum ævi minnar dvaldi ég mikið hjá ömmu sem bjó í sama húsi og foreldrar mínir að Álfheimum 13. Við bjuggum í lítilli íbúð í kjallara. Á fyrstu hæð bjó Jói bróðir ömmu og fjölskylda hans. Á annarri hæð bjuggu afi og amma, og efst uppi bjó Leifur langafi. Á morgnana þegar mamma og pabbi fóru í vinnuna var ég sendur upp til ömmu í pössun. Við fórum saman út í búð, í strætó niður í bæ, út um allt. Að halda í hönd ömmu þegar við vorum úti að labba er ein af mínum fyrstu bernskuminningum. Það var ávallt gott að vera hjá afa og ömmu og njóta þeirra væntumþykju, hlýju og tíma sem þau gáfu mér sem barni.

Eftir að afi féll skyndilega frá flutti ég til ömmu sem þá var ein í húsinu þeirra að Heiðargerði 61. Ég var þá námsmaður og dvaldi með henni í rúm tvö ár þar til ég fór utan í framhaldsnám. Við áttum ótal góðar stundir. Sátum oft saman á kvöldin, ræddum um daginn og veginn og atburði líðandi stundar. Ég naut mikið þess tíma. Amma bar alltaf velsæld fjölskyldunnar meira fyrir brjósti en sína eigin og vildi aldrei að neinn hefði áhyggjur af sér. Sérstaklega vildi hún að fólk fengi nóg að borða. Hún eldaði í þá daga kvöldmat fyrir okkur á hverju kvöldi og ég átti alltaf í erfiðleikum með að klára matinn, því skammtarnir voru svo stórir. Síðustu ár bjó amma ein, en sá alltaf til þess að hafa nóg til í ísskápnum ef von var á heimsókn.

Þrátt fyrir að vera ekki örugg með gang lét hún sig ekki vanta í skírn yngsta sonar míns, Ara, í júlí síðastliðnum. Ég er mjög þakklátur fyrir það. Það var einnig gaman fyrir börnin mín að geta heimsótt langömmu sína nokkrum sinnum meðan dvöl okkar á Íslandi stóð yfir. Ömmu þótti alltaf afskaplega gaman að fá okkur í heimsókn og vildi hafa okkur sem lengst. Það var erfitt að kveðja þegar sumarfríið var á enda og við þurftum að fara aftur utan. Ég fann það á henni, hvernig hún faðmaði okkur, hvernig hún tók innilega fast í hendurnar á mér, að hana grunaði að þetta væri í síðasta sinn.

Elsku amma, ég kveð þig með söknuði. Takk fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú gafst mér, takk fyrir að hafa verið svona yndisleg amma.

Þinn

Arnar.