Í dag er Sveinn Pálsson frá Sandgerði 95 ára. Sveinn giftist Eddu Ingibjörgu Margeirsdóttur (f. 15.2. 1933, d. 21.9. 2018) á jóladag árið 1950. Edda og Sveinn eignuðust 5 börn, 17 barnabörn og langafa- og langömmubörnin eru orðin 14.

Sveinn hefur gengið syngjandi í gegnum lífið enda ennþá kórfélagi í mörgum kórum. Annað áhugamál hans er fótbolti og var hann m.a. einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði.

Árið 1968 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem Sveinn hóf störf við Álverið í Straumsvík og starfaði hann þar í tugi ára fram á eftirlaunaaldurinn.

Sveinn býr nú einn á heimili þeirra hjóna og sér alfarið sjálfur um sig og húshaldið.

Í dag verður hann að heiman og heldur upp á daginn með afkomendum sínum.