Þessi uppskrift er að sögn Gunnars Más algjör klassík enda ekki annað hægt þegar um er að ræða kremaða hvítlaukssósu, ferskt spínat og sólþurrkaða tómata.
Kremaður tuscan-kjúklingur
7 g af kolvetnum
Aðferð:
Hitaðu ofinn í 180° og blástur
Hráefni:
350 g úrbeinuð kjúklingalæri eða kjúklingabringur
3 rif hvítlaukur, kraminn
½ haus blómkál, grjónað í matvinnsluvél eða rifið niður með rifjárni
1 poki ferskt spínat, grófsaxað
2 msk. sólþurrkaðir tómatar, saxaðir smátt
125 ml rjómi
2 msk. ferskur parmesan-ostur rifinn niður
1. Settu smjör eða olíu á heita pönnu og steiktu kjúklingalærin vel og kryddaðu þau með kryddi að eigin vali. Settu þau síðan í eldfast mót og hafðu í ofni í 10-15 mínútur. Fer eftir þykkt. Mæli með að skera bringurnar langsum í tvennt ef þú ert að nota þær til að stytta eldunartímann. 2. Settu 1 msk. smjör á pönnuna og byrjaðu á að steikja hvítlaukinn í 30 sekúndur og bættu svo blómkálinu við. Steiktu það í 5 mínútur. Bættu þá spínatinu saman við ásamt tómötunum. 3. Bættu síðan rjómanum og ostinum við og leyfðu þessu að malla í 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er klár. Ef þetta er að þykkna of mikið bætirðu við smá vatni. Smakkaðu til með salti.
4. Bættu kjúklingnum aftur á pönnuna og berðu fram með fersku grænu salati.