Fastagestir Á síðustu sýningu færðu Þóra Bragadóttir og Hafsteinn Ólafsson gestgjöfunum páskaegg, þeim Inger Lise og Arne Walter Mørch.
Fastagestir Á síðustu sýningu færðu Þóra Bragadóttir og Hafsteinn Ólafsson gestgjöfunum páskaegg, þeim Inger Lise og Arne Walter Mørch.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tíu sinnum hefur sjávarútvegssýningin Lofotfishing verið haldin í Kabelvåg í Norður-Noregi í lok vetrarvertíðar í mars eða byrjun apríl.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Tíu sinnum hefur sjávarútvegssýningin Lofotfishing verið haldin í Kabelvåg í Norður-Noregi í lok vetrarvertíðar í mars eða byrjun apríl. Á sex þessara sýninga hafa þau Þóra Bragadóttir og Hafsteinn Ólafsson, eigendur fyrirtækisins Beitis ehf. í Vogum, lagt leið sína til að kynna fyrirtækið og framleiðsluna. Þau eru þarna á heimavelli, þekkja orðið fjölda fólks frá bæjunum í Lofoten og tæki frá fyrirtækinu er að finna í fjölmörgum minni bátum í Norður-Noregi.

Enn einu sinni eru þau Þóra og Hafsteinn byrjuð að undirbúa ferð til Lofoten til að sýna línuspil, beitningatrektar, lyftukör og aðra framleiðslu sem Beitir hefur hannað og framleitt. Alls gætu tæki sem þau senda með Norrönu til Hirtshals vegið hátt í eitt tonn. Þaðan fer búnaðurinn með stórum trukk norður til Lofoten.

Fyrstu skrefin í skúrnum

Nú starfa 5-6 manns hjá Beiti, en fyrstu skrefin voru stigin í skúrnum við heimili þeirra Þóru og Hafsteins í Vogum 1988. Saga þessa fjölskyldufyrirtækis spannar því rúmlega 30 ár og börn og barnabörn hafa lagt fyrirtækinu lið. Börn þeirra fjögur voru með í för á sýningunni fyrir tveimur árum og vakti það nokkra athygli.

„Það er einstakt ævintýri að koma norður til Lofoten á þessum árstíma,“ segir Þóra í samtali við Morgunblaðið og öðrum þræði er eins og hún sé að lýsa þátttöku í ættarmóti. „Sýningin hefur stækkað mikið, en eigi að síður er mikil nánd þarna meðal fólks sem kemur nánast allt úr sjómannasamfélaginu í Norður-Noregi. Þangað koma menn sem róa á eigin bátum og við erum því að tala beint við notendur búnaðarins, sem margir eru orðnir stórvinir okkar. Veturinn 2017 hafði verið snjólétt, en síðustu dagana fyrir sýninguna kyngdi niður snjó og það var allt bókstaflega á kafi meðan sýningin stóð yfir. Það var hins vegar yndislegt og ótrúlega fallegt í blankastillu, sem var þessa daga.“ Þóra segir að þau hafi ævinlega reynt að sinna viðskiptavinum Beitis eins vel og þau framast geti, en fyrirtækið sinnir einnig ýmiss konar sérsmíði. „Noregur er stór markaður fyrir okkar vörur og tæki frá okkur eru mjög víða í norskum bátum. Við höfum tvívegis farið til Noregs og keyrt strandlengjuna frá Kirkenes í norðaustri niður til Sandefjord, alls rúmlega 20 þúsund kílómetra, og farið á óteljandi firði og víkur. Þeir eru óteljandi beitningaskúrarnir sem við höfum heimsótt og þegið kaffisopa í.

Viðskiptavinirnir kunna að meta þessar heimsóknir og aðstoð sem við höfum getað veitt þeim, nokkuð sem við munum halda áfram að gera. Við förum alltaf niður á bryggju og sums staðar er annar eða þriðji hver bátur með tæki frá okkur,“ segir Þóra.

Um 150 sýnendur

Sýningin í Jakobsvaag er talsvert minni í sniðum en stóra NorFish-sjávarútvegssýningin í Þrándheimi, sem er meðal stærstu sýninga í atvinnugreininni í heiminum. Litli bróðir í norðri, Lofotfishing, þjónar hins vegar vel minni útgerðarfyrirtækjum í Lofoten og nágrenni.

Lengi vel var einn íþróttasalur í Kabelvaag og dugði hann fyrir sýnendur. Handboltasal var bætt við á sýningunni fyrir tveimur árum og útlit er fyrir að salirnir verði báðir fullnýttir er 11. sýningin hefst 29. mars. Líklegt er að sýnendur verði yfir 150 og alls er sýningarplássið um fimm þúsund fermetrar. Auk Noregs kynna fyrirtæki frá Danmörku og Svíþjóð framleiðslu sína og frá Íslandi taka Beitir og Ekkó þátt í sýningunni og hugsanlega fleiri.