Darmstadt Guðlaugur Victor Pálsson í búningi þýska félagsins.
Darmstadt Guðlaugur Victor Pálsson í búningi þýska félagsins. — Ljósmynd/sv98.de
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þó að Guðlaugur Victor Pálsson sé aðeins 27 ára gamall er hann kominn í hóp allra víðförlustu knattspyrnumanna Íslands fyrr og síðar eftir að hann gekk til liðs við þýska B-deildarfélagið Darmstadt í gær.

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Þó að Guðlaugur Victor Pálsson sé aðeins 27 ára gamall er hann kominn í hóp allra víðförlustu knattspyrnumanna Íslands fyrr og síðar eftir að hann gekk til liðs við þýska B-deildarfélagið Darmstadt í gær.

Þýskaland verður áttunda landið þar sem Victor spilar sem atvinnumaður en Þjóðverjarnir kaupa hann af svissneska félaginu Zürich þar sem hann hefur leikið í hálft annað ár og gegnt stöðu fyrirliða.

Þar á undan lék Victor í Danmörku (Esbjerg), Svíþjóð (Helsingborg), Hollandi (Nijmegen), Bandaríkjunum (New York Red Bulls), Skotlandi (Hibernian) og Englandi (Dagenham og Liverpool).

Aðeins tveir íslenskri knattspyrnumenn hafa leikið sem atvinnumenn í fleiri löndum en þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Hannes Þ. Sigurðsson eru báðir með níu lönd á ferilskránni.

Þetta verður hinsvegar í fyrsta skipti á ferlinum sem Victor leikur í B-deild. Öll hans félög á ferlinum hafa verið í efstu deild, nema þegar Liverpool lánaði hann til Dagenham sem þá var í ensku C-deildinni.

Viktor verður fyrstur Íslendinga til að spila með Darmstadt, sem er frá samnefndri 160 þúsund manna borg, skammt sunnan við Frankfurt í fylkinu Hessen. Liðið var á árum áður oftast í B-deildinni, stöku sinnum í efstu deild, en eftir mikil fjárhagsvandræði undir lok 20. aldarinnar var félagið C- og D-deildum þar til það rauk upp úr C-deild og í 1. deildina á tveimur árum, 2013-15. Þar lék félagið meðal þeirra bestu í tvö tímabil, en féll vorið 2017 og er á sínu öðru ári í B-deild. Þar er liðið núna í þrettánda sæti af átján liðum, sex stigum fyrir ofan umspilssæti.

Þar með eru tveir Íslendingar í B-deildinni en Rúrik Gíslason leikur með Sandhausen, sem er tveimur sætum neðar, og hefur leikið í þessari deild frá 2015.

Victor telur sig taka skref upp á við úr efstu deild í Sviss í B-deild í Þýskalandi en ítarlegt viðtal við hann er á mbl.is/sport.