Flókin litaríferð. S-AV
Norður | |
♠764 | |
♥72 | |
♦ÁKG92 | |
♣D76 |
Vestur | Austur |
♠D108 | ♠G95 |
♥KDG86 | ♥10543 |
♦D76 | ♦108 |
♣85 | ♣KG102 |
Suður | |
♠ÁK32 | |
♥Á9 | |
♦543 | |
♣Á943 |
Suður spilar 3G.
Prófessor Lárus lækjarbotn lítur svo á að litaríferð ráðist af tvennu: líkindafræði og aldri andstæðinganna. Um líkindafræðina les hann í tölfræðibókum, en aldursfræðin er byggð á umdeildri kenningu Edgars Kaplans, fyrrverandi ritstjóra The Bridge World.
Kenning Kaplans var smíðuð í kringum tígullitinn að ofan. Suður spilar 3G með ♥K út og þarf að fá fimm slagi á tígul í hvelli. Í tölfræðibókum segir að rétt sé að taka fyrst á ♦Á, fara svo heim og svína næst gosanum ef ekkert merkilegt spil kemur í ásinn.
„En,“ segir Kaplan: „Ef austur kann til verka setur hann ♦10 með tíuna aðra eins og hann sé með ♦D10.“ Samkvæmt Kaplan eru unglingar og gamalmenni líklegustu kandídatarnir til að fúla og því eigi að djúpsvína níunni næst ef austur er yngri en tuttugu ára eða kominn yfir sextugt.
Lárus drap á ♥Á, spilaði tígli á ás og austur lét áttuna.
„Hvað ertu gamall?“