Ótrúlegur árangur Erna Bryndís Einarsdóttir deilir hér reynslu sinni af ketó mataræði. Hún er afskaplega ánægð og kveður það henta sér vel.
Ótrúlegur árangur Erna Bryndís Einarsdóttir deilir hér reynslu sinni af ketó mataræði. Hún er afskaplega ánægð og kveður það henta sér vel. — Ljósmynd/Hildur Heimisdóttir
Mig langar að deila með ykkur ánægju minni með ketó-prógrammið. Ég er sem sagt einn mesti sælkeri og sælgætisgrís sem allir í kringum mig þekkja og minn uppáhaldsóvinur hefur verið brauðið.

Mig langar að deila með ykkur ánægju minni með ketó-prógrammið. Ég er sem sagt einn mesti sælkeri og sælgætisgrís sem allir í kringum mig þekkja og minn uppáhaldsóvinur hefur verið brauðið. Þegar ég var búin að lesa mér til um ketó-efnið frá Gunna og þær leiðir sem prógrammið bauð upp á ákvað ég einnig að fara 17:7-leiðina sem þýðir að ég borða ekki eftir kvöldverð og fasta fram að hádegisverði og sú leið hefur hentað mér einstaklega vel. Þess á milli borða ég samkvæmt ketó-uppsetningunni.

Ég hefði aldrei trúað því að ég gæti kvatt sykurinn og hveitið eins auðveldlega og ég er að gera núna. Mér finnst ég hreinlega alltaf vera að borða mjög girnilegan og góðan mat og sakna í raun einskis og langar ekki í neitt annað en það sem ég borða núna. Þetta er eitt það magnaðasta sem ég hef upplifað.

Eftir sjö daga hafði ég misst fjögur kíló og eftir 15 daga var ég búin að missa átta kíló. Eftir þetta fór þyngdartapið að hægja á sér en ég fann að ummálið var augljóslega ennþá að fara hratt niður. Eftir sex mánuði á ketó hef ég nú misst yfir 23 kíló, sem í mínum huga er lítið kraftaverk, hvorki meira né minna.

Það sem er jafnvel enn mikilvægara er að mér líður stórkostlega, bæði andlega og líkamlega. Ég fann áður fyrr oft fyrir þreytu og sleni sem hefur vikið fyrir margfalt meiri orku og gleði sem eru frábær skipti.

Ég er bara svo endalaust þakklát fyrir að hafa tileinkað mér þennan lífsstíl því ég veit ekki hversu oft ég hef reynt að hætta að borða sykur eða brauð og pasta og hreinlega gleymt því sama dag og ég byrja í átakinu.