Lengi lifi Larsen er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Iðnó 31. janúar næstkomandi til heiðurs Kim heitnum Larsen.
Lengi lifi Larsen er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Iðnó 31. janúar næstkomandi til heiðurs Kim heitnum Larsen. Af þeim tónlistarmönnum sem koma fram þetta kvöld má nefna Mads Mouritz og hljómsveit, Ólöfu Arnalds, Bubba Morthens og Teit Magnússon. Hljómsveitina skipa Magnús Trygvason Eliassen, Ingibjörg Elsa Turchi, Hróðmar Sigurðsson og Árni Guðjónsson.