Birgir Guðjónsson
Birgir Guðjónsson
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það er talsvert um fyrirspurnir. Margir hafa að undanförnu sótt um aðild að Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH),“ segir Birgir Guðjónsson, formaður félagsins. Margir nýir félagsmenn komi úr VR.

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

„Það er talsvert um fyrirspurnir. Margir hafa að undanförnu sótt um aðild að Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH),“ segir Birgir Guðjónsson, formaður félagsins. Margir nýir félagsmenn komi úr VR.

„Það er fólk sem hefur verið í VR og er óánægt með stefnuna hjá félaginu. Því líkar ekki hinn herskái tónn,“ segir Birgir.

Um 1.650 félagsmenn eru nú í KVH og hefur þeim fjölgað um 13% frá ársbyrjun 2018.

KVH er eitt aðildarfélaga Bandalags háskólamanna, BHM.

Um 7% fjölgun í BHM

Um 13.400 félagsmenn voru í BHM í september sl. Það er 7% fjölgun á einu ári. Fræðagarður - stéttarfélag háskólamenntaðra er eitt aðildarfélaga BHM.

Bragi Skúlason, formaður Fræðagarðs, segir að í lok ársins 2016 hafi tæplega 2.000 félagsmenn verið í félaginu en rúmlega 2.400 í lok árs 2018. Það er um 20% fjölgun.

Hann greini ekki straum úr VR yfir í Fræðagarð. „Á einkamarkaði eru nú um 900 félagsmenn í Fræðagarði, tæplega 800 hjá ríkinu. Þá erum við með félagsmenn hjá sveitarfélögum um land allt, hjá sjálfseignarstofnunum o.fl. Fræðagarður starfar á landsvísu og í félaginu eru þrjár fagdeildir og mikill fjöldi starfsheita,“ segir Bragi.

Líka fjölgun hjá lykilmönnum

KVH er ekki eina stéttarfélagið sem hefur fengið til sín fyrrverandi félagsmenn í VR.

Fram kom í Morgunblaðinu fyrr í þessum mánuði að félagsmenn í stéttarfélaginu Félag lykilmanna (FLM) eru nærri tvöfalt fleiri en fyrir ári. Þeir voru um 400 í byrjun árs 2018 en eru nú rúmlega 700.

FLM er stéttarfélag stjórnenda og sérfræðinga. Gunnar Páll Pálsson, formaður FLM, sagði óánægju með herskáan tón verkalýðshreyfingarinnar meðal skýringa á auknum áhuga á félaginu. Félagsmenn telji sig ekki eiga samleið með verkalýðshreyfingunni.