Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, undirrituðu í gær nýjan vináttusamning milli ríkjanna sem sætt hefur gagnrýni í báðum löndunum. Þjóðernissinnar og flokkar, sem eru lengst til vinstri, gagnrýna samninginn á þeirri forsendu að í honum felist fullveldisafsal og segja að of langt sé gengið í því að stuðla að auknum samruna ríkjanna tveggja og annarra landa Evrópusambandsins. Stuðningsmenn ESB telja hins vegar samninginn ganga of skammt og vera til marks um veika stöðu beggja leiðtoganna í löndum þeirra.
Í samningnum segir meðal annars að ríkin tvö hyggist auka samstarf sitt í efnahags-, utanríkis-, varnar- og öryggismálum. Merkel sagði að nýi vináttusamningurinn væri skref í þá átt að stofna evrópskan her.
Sagður jaðra við landráð
Samningurinn var undirritaður á 56 ára afmæli vináttusamnings sem Charles de Gaulle, þá forseti Frakklands, og Konrad Adenauer, kanslari Þýskalands, undirrituðu í Élysée-höll 22. janúar 1963. Sá samningur er álitinn einn af hornsteinum aukins samstarfs Evrópuríkja eftir síðari heimsstyrjöldina og löndin tvö hafa verið kjölfestan í Evrópusambandinu og forverum þess.Nýi vináttusamningurinn var undirritaður í þýsku borginni Aachen, við landamæri Belgíu og Hollands, en hún var aðalaðsetur Karls mikla, eða Karlamagnúsar, konungs Frankaríkis. Karl mikli lést í borginni í janúar 814 eftir að hafa sameinað stóran hluta Vestur-Evrópu.
Þjóðernisflokkar í Frakklandi og Þýskalandi hafa gagnrýnt nýja vináttusamninginn og sakað leiðtoga landanna um fullveldisafsal. Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðarhreyfingarinnar í Frakklandi, sagði Macron hafa gerst sekan um „verknað sem jaðrar við landráð“.
Alexander Gauland, leiðtogi þýska þjóðernisflokksins AfD, sakaði Merkel og Macron um að ætla að búa til „ofur-ESB“ innan Evrópusambandsins. „Við sem lýðhyggjumenn krefjumst þess að menn gæti hagsmuna eigin lands,“ sagði hann. „Við viljum ekki að Macron endurreisi land sitt með þýskum peningum.“
Macron vísaði gagnrýninni á bug og sakaði þjóðernissinna um að dreifa falsfréttum. „Þeir sem gleyma því hversu mikilvægar sættir Frakklands og Þýskalands eru gera sig að sökunautum þeirra sem frömdu glæpi fortíðarinnar,“ sagði hann. „Þeir sem breiða út lygar skaða fólkið, sem þeir þykjast vilja vernda, með því að reyna að láta söguna endurtaka sig.“
NATO fagnar samningnum
Í nýja samningnum er meðal annars kveðið á um að ríkisstjórnir landanna tveggja komi saman árlega og að fimmtíu þingmenn frá hvoru landi haldi fundi reglulega til að ræða samstarf ríkjanna. Löndin tvö lofa einnig að verja hvort annað ef til árásar komi, til að mynda hryðjuverkasamtaka, og árétta þannig ákvæði í stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um að árás á eitt aðildarríkjanna jafngildi árás á þau öll. Stjórnvöld í Frakklandi og Þýskalandi ætla einnig að stofna sameiginlegt ráð í varnar- og öryggismálum og beita sér fyrir því að reglur um vopnakaup og þróun vopna verði samræmdar. Merkel sagði að eitt af markmiðum vináttusamningsins væri að „stuðla að stofnun evrópsks hers“ og Macron tók í sama streng.Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, fagnaði vináttusamningnum og sagði að frönsk og þýsk stjórnvöld hefðu skýrt honum frá ákvæðum hans í öryggis- og varnarmálum daginn áður en hann var undirritaður. „Samstarf Frakklands og Þýskalands hefur áratugum saman skipt sköpum fyrir öryggi og stöðugleika í Evrópu,“ sagði hann. „Aachen-samningurinn er áminning um sögulegt mikilvægi þessa samstarfs, hversu langt Evrópu hefur miðað frá eyðileggingunni í síðari heimsstyrjöldinni og um mikilvægi þess að halda áfram að vinna að frjálsri og friðsamlegri Evrópu.“
Í samningnum lofa Frakkar að styðja það að Þýskaland fái fastafulltrúa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Samningurinn kveður á um aukið samstarf landanna tveggja í efnahagsmálum og stefnt er að „þýsk-frönsku efnahagssvæði með sameiginlegar reglur“. Stofnað verður nýtt sameiginlegt ráð sérfræðinga sem eiga að finna leiðir til að fjarlægja fjárfestingarhindranir og samræma lög í því skyni að greiða fyrir viðskiptum milli landanna.
Í samningnum er einnig lögð áhersla á að efla tengsl franskra og þýskra íbúa sveitarfélaga við 450 kílómetra löng landamæri ríkjanna. Stofna á sérstakan „borgarasjóð“ til að styrkja verkefni sem miða að auknu samstarfi franskra og þýskra sveitarfélaga við landamærin og bættum samgöngum milli þeirra, auk verkefna sem eiga að auka tengsl þjóðanna, t.a.m. tvítyngda skóla.
Kjölfestan efld
Claire Demesmay, stjórnmálafræðingur við þýsku rannsóknastofnunina DGAP, segir að markmiðið með nýja sáttmálanum sé að efla þýsk-frönsku kjölfestuna í Evrópusambandinu nú þegar Bretar búa sig undir að ganga úr sambandinu og þjóðernisflokkar sækja í sig veðrið í mörgum þeirra. „Við stöndum frammi fyrir tilvistarkreppu hvað varðar samruna Evrópusambandsins, með brexit og væntanlegri fylgisaukningu þjóðernissinna í næstu kosningum til Evrópuþingsins [í maí],“ hefur fréttaveitan AFP eftir Demesmay. „Í því samhengi hefur það táknræna þýðingu að árétta trúna á samstarf Frakklands og Þýskalands.“Báðir leiðtogarnir eiga undir högg að sækja heima fyrir, Macron vegna mótmæla „gulvestunga“ og Merkel vegna fylgistaps kristilegra demókrata sem varð til þess að hún ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri þegar kjörtímabilinu lýkur árið 2021.
Neitar „falsfréttum“
» Emmanuel Macron neitaði í gær „falsfréttum“ sem hann sakaði þjóðernissinna um að hafa dreift, m.a. um að Frakkland myndi neyðast til að afsala sér héruðum til Þýskalands vegna nýja samningsins.
» „Nei, Alsace og Lorraine verða ekki færð undir forræði Þýskalands,“ sagði í yfirlýsingu frá forsetanum.
» „Nei, íbúar Alsace verða ekki skyldaðir til að læra og tala þýsku.“
» „Nei, Frakkland á ekki að deila sæti sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna með Þýskalandi.“