Pálmi V. Jónsson
Pálmi V. Jónsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Við vitum af tugum hjóna þar sem heilbrigður maki veikist vegna álags við umönnun á veikum maka. Fólk segir ekki frá þar sem um viðkvæm persónuleg mál er að ræða.

„Við vitum af tugum hjóna þar sem heilbrigður maki veikist vegna álags við umönnun á veikum maka. Fólk segir ekki frá þar sem um viðkvæm persónuleg mál er að ræða. Landssamband eldri borgara hefur miklar áhyggjur af þessari þróun,“ segir Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, formaður landssambandsins.

Hún tekur undir það sem Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir hefur sagt um skort á samfellu í úrræðum fyrir eldri borgara. Dæmið um hjónin í Hafnarfirði, sem aðskilin eru vegna hvíldarinnlagnar eiginkonunnar á Húsavík á meðan eiginmaðurinn bíður heima í Hafnarfirði, sé með þeim verstu en alls ekki eina dæmið um aðskilnað hjóna.

Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarmála á Landspítala og formaður færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins, segir það ekki alls kostar rétta fullyrðingu sem fram kom í Morgunblaðinu í gær að einstaklingar með heilabilunarsjúkdóma, sem ekki nýta sér alla þjónustu sem í boði er, komist ekki á forgangslista fyrir hvíldarinnlögn.

„Undir venjulegum kringumstæðum þarf fólk að nýta sér formlega þjónustu ef hún er í boði. Í tilfellum þar sem maki eða aðrir fjölskyldumeðlimir annast þjónustuna er litið á það sem ígildi þjónustu þegar kemur að samþykki færni- og heilsumats fyrir varanlega dvöl í hjúkrunarrými og ljóst þykir að ekki verður lengur stætt úti í samfélaginu vegna framvindu sjúkdómsins,“ segir Pálmi.

Hann bætir við að það geti þó verið í mörgum tilfellum skynsamlegra fyrir ættingja að þiggja þjónustu til þess að létta á og fá stuðning í stað þess að bera allar byrðarnar.