Í Köln
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Landslið Brasilíu, sem íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir í lokaleik sínum á HM kl. 14.30 í dag, hefur fram undir þetta ekki verið tekið alvarlega sem handknattleikslið á alþjóðlegan mælikvarða. Brasilíumenn unnu sér fyrst inn keppnisrétt á HM á Íslandi 1995. Óhætt er að segja að byrjunin hafi ekki lofað góðu. Þeir töpuðu öllum sínum leikjum og ráku lestina af 24 liðum þegar mótið var gert upp. Til þessa er besti árangur Brasilíumanna á HM 13. sæti á mótinu fyrir sex árum.
Síðan Brasilíumenn tóku þátt í HM á Íslandi hafa þeir alltaf verið með. Þeim hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg á handboltavellinum en handbolti er stundaður á nokkrum svæðum landsins, ekki síst í tengslum við framhaldskóla og háskóla. Þá ekki síður á meðal kvenna en karla en árum saman var kvennalandslið Brasilíu í allra fremstu röð í heiminum.
Á árunum í aðdraganda Ólympíuleikanna í Rio Janero sumarið 2016 var mikið lagt í undirbúning heimamanna til þátttöku í fjölbreyttum íþróttagreinum leikanna. Kraftur var settur í þjálfun handboltamanna. Núverandi landsliðsþjálfari Spánar, Jordi Ribera, var ráðinn landsliðsþjálfari karla 2013 auk þess að vera ráðgjafi við ýmsa þjálfun. Ribera leiddi karlalið Brasilíu inn í átta liða úrslit leikanna sem var árangur framar vonum. Hann hætti eftir leikana og tók við landsliði Spánar. Í stað Ribera var ráðinn núverandi þjálfari sem er heimamaður, Washington Nunes Silva Junior, 55 ára gamall. Hann hafði verið hægri hönd Ribera. Á HM fyrir tveimur árum sýndi brasilíska landsliðið að árangur þess á ÓL nokkrum mánuðum fyrr var engin tilviljun. Liðið komst í 16-liða úrslit þar en tapaði fyrir fyrrverandi læriföður sínum í spænska landsliðinu með eins marks mun, 28:27.
Ljóst er að hvernig sem leikur Íslands og Brasilíu í Lanxess-Arena í dag endar þá hafa Brasilíumenn náð sínum besta árangri á HM frá upphafi. Þeir verða aldrei neðar en í 12. sæti.
Brasilíska liðið hefur vakið talsverða athygli á HM í Þýskalandi og Danmörku. Liðið hefur unnið fjóra leiki, Rússland 25:23, Serbíu 24:22, Kóreu 35:26 og Króatíu 29:26. Síðastnefndi sigurinn vakti gríðarlega athygli enda voru Króatar taplausir þegar kom að leiknum. Brasíla hefur tapað fyrir Frakklandi, 24:22, Þýskalandi 31:24 og Spáni 36:24 í fyrradag. Nunes Silva þjálfari sagði eftir leikinn við Spán að helsta ástæðan fyrir tapinu hefði verið þreyta. Leikmönnum hefði ekki tekist að safna kröftum eftir erfiðan leik við Króata.
Meirihlutinn leikur í Evrópu
Níu af 16 leikmönnum brasilíska liðsins á HM leika með félagsliðum í fimm Evrópulöndum, Frakklandi, Spáni, Portúgal, Póllandi og í Rúmeníu. Einn þeirra, Thiagus Petrus Santons, hægri handar skytta, er samherji Arons Pálmarssonar hjá Barcelona. Hann hefur verið rólegur á mótinu og aðeins skorað átta mörk í 15 skotum. Jose Toledo, örvhent skytta sem leikur með Wisla Plock í Póllandi, er markahæsti leikmaður Brasilíu á mótinu með 29 mörk. Haniel Langero, hægri handar skytta og leikmaður Dunkerque í Frakklandi, er næstur með 28 mörk. Langero skoraði m.a. níu mörk í 12 skotum í sigrinum á Króötum, ekkert markanna var úr vítakasti. Felpie Borges, vinstri hornamaður og liðsmaður Tremblay í Frakklandi er þriðji markahæsti leikmaður liðsins. Hann hefur skorað 26 sinnum.Landslið Brasilíu er hávaxið og virðist í góðu líkamlegu formi. Það hefur skorað 35 mörk eftir hraðaupphlaup, sex hraðaupphlaup liðsins á mótinu hafa farið forgörðum. Brasilíumenn hafa leikið mest 5/1 vörn með framliggjandi manni í leikjum sínum við Spánverja og Króatíu.
Íslenska landsliðið lék við landslið Brasilíu á alþjóðlegu móti í Ósló 5. janúar sl. og vann með fjögurra marka mun, 33:29, eftir að hafa verið með yfirhöndina alla leikinn. Síðan hefur brasilíska landsliðinu vaxið sjálfstraust.