Tónlistarkonan Carrie Underwood og eiginmaður hennar Mike Fisher eignuðust dreng síðastliðinn mánudag. Fyrir áttu þau soninn Isaiah sem verður fjögurra ára í febrúar. Underwood birti mynd af sér með nýja fjölskyldumeðlimnum á Instagram.
Tónlistarkonan Carrie Underwood og eiginmaður hennar Mike Fisher eignuðust dreng síðastliðinn mánudag. Fyrir áttu þau soninn Isaiah sem verður fjögurra ára í febrúar. Underwood birti mynd af sér með nýja fjölskyldumeðlimnum á Instagram. Í ágúst síðastliðnum tilkynnti hún að þau hjónin ættu von á barni. Erfiðlega hafði þá gengið hjá þeim og sagði Underwood að þau hefðu þrisvar misst fóstur á tveimur árum. Í kjölfar erfiðleikanna gaf hún út lagið „Cry Pretty“ því hún óttaðist að geta ekki eignast fleiri börn.