Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins (SI), segir áætlaða fjárfestingu í innviðum fyrir 130 milljarða í ár munu vega á móti niðursveiflu í sumum greinum. Atvinnuleysi sé að aukast.
„Fjárfesting í atvinnuvegum dróst saman í fyrra. Þá til dæmis í ferðaþjónustu og stóriðju. Mannvirkjagerð og ferðaþjónustan hafa vegið langþyngst hvað starfasköpun varðar á síðustu árum,“ segir Ingólfur.
Vinnumálastofnun (VMST) spáir 2.500 nýjum störfum í ár. Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá VMST, segir gert ráð fyrir aukinni fjárfestingu í innviðum í þeirri spá.
Fjölgun starfa í ár sé minni en fyrirsjáanleg fjölgun fólks á vinnumarkaði. Aukið atvinnuleysi skýrist að hluta af því að enn sé straumur innflytjenda umfram fjölgun starfa
Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins, segir verulega breytingu munu verða á innviðum svæðisins með þessum breytingum. Framkvæmdir við borgarlínu komi til viðbótar.
60% aukning
» SI áætluðu á útboðsþingi að fjárfest yrði fyrir 130 milljarða í innviðum á Íslandi í ár, á móti 80 milljörðum á síðasta ári.
» Það eru rúmir 10 milljarðar á mánuði og 60% aukning.