Listasafnið á Akureyri verður með dagskrá helgaða sýningunni Örn Ingi Gíslason: Lífið er LEIK-fimi um helgina. Á laugardaginn frá kl.
Listasafnið á Akureyri verður með dagskrá helgaða sýningunni Örn Ingi Gíslason: Lífið er LEIK-fimi um helgina. Á laugardaginn frá kl. 15 verður haldin kynning á bók um Örn Inga og málþing en sýningin hefur verið skipulagður gjörningur frá því hún var opnuð 3. nóvember. Á sunnudaginn kl. 14 hefst tónlistardagskrá og munu tónlistarnemar flytja verk samið fyrir sýninguna og börn úr leiklistarskóla munu leiklesa úr nokkrum handritum sem Örn Ingi samdi fyrir börn.