Frá því mér var úthlutaður rammi á tíu daga fresti á leiðarasíðu Morgunblaðsins, í aðdraganda þingkosninga 2017, hef ég iðulega verið spurð að því hvernig ég hafi geð í mér að skrifa í þennan fjölmiðil.

Frá því mér var úthlutaður rammi á tíu daga fresti á leiðarasíðu Morgunblaðsins, í aðdraganda þingkosninga 2017, hef ég iðulega verið spurð að því hvernig ég hafi geð í mér að skrifa í þennan fjölmiðil. Fyrirspyrjendur segja allir ástæðu spurningarinnar þá sömu. Ritstjórinn sem stýrir þessu blaði hefur um áratugaskeið verið þess háttar gerandi í íslensku samfélagi að það er óásættanlegt að margra mati að kjörinn fulltrúi jafnaðarmanna á Íslandi, helsta óvinar ritstjórans fyrr og síðar, taki þátt í að fylla blað ritstjórans með orðum sínum.

Mín skoðun til þessa dags hefur verið sú að það skipti máli að boðskapur og stefna okkar jafnaðarmanna í Samfylkingunni berist sem víðast. Að þrátt fyrir ritstjórann, sem augljóslega hefur ekki það markmið að efla veg og virðingu Morgunblaðsins með setu sinni í ritstjórastól, sé það mikilvægt að þeir lesendur Morgunblaðsins sem eftir eru fái lesið það sem við höfum fram að færa.

Þá hef ég einnig sagt í vörnum mínum fyrir skrif mín í blaðið að þrátt fyrir ritstjórann starfi við blaðið fjöldi góðra blaðamanna, jafnvel afbragðs blaðamanna, sem sinna mjög vel t.d. mannlífs- og menningarskrifum sem og fréttaskýringum og það megi ekki gleymast. Það fólk hefur á stundum átt alla mína samúð og á enn enda hlýtur starf þess og starfsaðstæður undanfarinn áratug á köflum að hafa verið afar flókin.

Fjölmiðlar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki. Þeir eru ekki kallaðir fjórða valdið fyrir ekki neitt, því hin þrjú, löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald þurfa svo sannarlega á aðhaldi að halda. Fjórða valdið á líka að bera fram staðreyndir, upplýsa almenning og miðla áfram ýmiskonar fróðleik. En fjölmiðlar þurfa að fara vel með sitt vald og leita sannleikans í hvívetna. Því miður þá hefur ritstjórinn og þeir sem honum hlýða á ritstjórn blaðsins fallið ítrekað á fagmennskuprófinu. Vilji ritstjórans til að afvegaleiða umræðuna, fara fram með hálfsannindi og rógburð, dylgjur eða níð hefur því miður dregið fjölmiðilinn niður á slíkt plan að enn á ný stendur maður frammi fyrir þeirri spurningu til hvers í ósköpunum maður er að taka þátt í pistlaskrifum í sama blað. Tímasetningin er engin tilviljun enda hefur ritstjórinn um áratugaskeið beitt nákvæmlega sömu tækni. Það vita þeir sem starfað hafa með honum í stjórnmálum og víðar. Ef þú fylgir honum ekki í einu og öllu ertu á móti honum. Það er enginn millivegur og þá skipta staðreyndir eða sannleikur engu máli.

Tilgangurinn helgar meðalið, fjölmiðillinn Morgunblaðið er dreginn niður í svaðið með ritstjóranum og fjórða valdið skaddast. Eftir stendur viðfangsefnið, stundum laskað, stundum fíleflt en fjölmiðillinn og þar af leiðandi hið upplýsta samfélag ber skaðann. Helgavala@althingi.is

Höfundur er þingman Samfylkingarinnar.

Höf.: Helga Vala Helgadóttir