Sindri Þór Stefánsson, sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelldan tölvuþjófnað úr gagnaverum, hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar. Þetta staðfestir lögmaður hans, Þorgils Þorgilsson, við mbl.is.
Sindri Þór Stefánsson, sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelldan tölvuþjófnað úr gagnaverum, hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Landsréttar. Þetta staðfestir lögmaður hans, Þorgils Þorgilsson, við mbl.is. Matthías Jón Karlsson, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna málsins, hefur einnig ákveðið að áfrýja dómum. Guðni Jósep Einarsson, verjandi Matthíasar Jóns, staðfesti þetta við mbl.is.