Borussia Dortmund heldur enn sex stiga forskoti á meistarana í Bayern München í þýsku A-deildinni í knattspyrnu en bæði lið unnu örugga sigra í leikjum sínum um helgina. Dortmund burstaði Hannover 5:1 og eftir leikinn var þjálfari Hannover rekinn.

Borussia Dortmund heldur enn sex stiga forskoti á meistarana í Bayern München í þýsku A-deildinni í knattspyrnu en bæði lið unnu örugga sigra í leikjum sínum um helgina. Dortmund burstaði Hannover 5:1 og eftir leikinn var þjálfari Hannover rekinn. Achraf Hakimi, Marco Reus, Mario Götze, Raphael Guerreiro og Axel Witzel skoruðu mörk Dortmund. Bayern München vann 4:1 sigur gegn Stuttgart. Thiago, Leon Goretzka, Robert Lewandowski skoruðu sitt markið hver og eitt markanna var sjálfsmark.

Það gengur ekkert hjá Alfreð Finnbogasyni og félögum hans í Augsburg sem töpuðu fyrir Gladbach 2:0. gummih@mbl.is